þriðjudagur, 4. janúar 2011

Gleðilegt ár

Megi þetta ár verða öllum gleðiríkt.......bloggið er eitthvað að stríða mér, vill ekki opnast á Firefox, vantar eitthvað "Certificate" dæmi, æi ég fór bara framhjá því á Explorer og ákvað því að rita niður nokkur orð. Engin mynd mun þó fylgja í dag  þar sem ég er í vinnutölvunni, sem er hér heima, og engar nýjar myndir þar. Kannski ég setji bara einhverja gamla, svona til að líta um öxl, er það ekki hefð um áramót??
Ég lít um öxl og sé mig fyrir næstum því 9 árum, alveg að fara að eignast mitt 1.barn.......flottur bolur!

Hef reynt að draga strákana út síðustu daga, það er voða þægilegt að hanga inni í jólafríi og leika í Nintendo. Skólarnir byrja ekki fyrr en 10.jan......ég er búin að biðja Seydi um að sækja um á geðsjúkrahúsi á mánudaginn.......ég er ekki að gera grín af geðveikum en þar sem strákarnir vildu ekki fara í gæslun (sem er í öðrum skóla í þessu fríi) erum við MIKIÐ saman, daginn út og inn. Það getur tekið á taugarnar, já já.
En á sunnudaginn splittuðum við strákunum, ég fór með Henrik að leikhúsinu að renna og Julian var heima hjá Seydi. Í gær fórum við svo öll, nema Seydi auðvitað, að renna í snilldar færi. Í dag var svo skautaferð á dagskrá. Flott skautasvell fyrir framan ráðhúsið og það var svo gaman að strákarnir vilja helst fara aftur. Sjáum til, það lokar á laugardaginn en við getum þó alltaf farið á skauta á íshokkívöllunum hér í kring t.d. í Dorsten, Herne eða Gelsenkirchen.

Ég er því vel þreytt núna, örugglega næstum því eins þreytt og á þessari mynd hér að ofan......andlitið á mér logar, ég er örugglega eins og karfi í framan. Fór nefnilega í pizzubakstur þegar við komum heim og hitnaði við það. Pizzan var góð, mmmmmmmm en ég ætla samt ekki að borða yfir mig. Passa línurnar, hehe. Þyngdist reyndar ekkert yfir hátíðarnar svo þetta er allt í góðu, þannig......mig langar alveg að losna við nokkur kíló en ég er búin að biðja um fitness disk fyrir Xbox í afmælisgjöf. Get þá hamast hér heima við, það verður fínt.

Vó, ætlaði sko ekki að skrifa svona mikið.........orðin gott í dag.
Bis dann

3 ummæli:

  1. Sæl elskan. Gaman að lesa bloggið eins og vanalega, eg verð nú að segja að þú ert unglegri í dag en á þessari mynd(kanski ekkert skrítið miðað við aðstæður).
    Þetta með geðsjúkrahúsið verður nú óþarfi eftir skautaferðina er það ekki?? Njóttu þess bara að vera með þessum elskum þínum þeir verða vaxnir þér yfir höfuð áður en þú veist af.
    Ástarkveðjur og knús frá mömmu.

    SvaraEyða
  2. Nei, kannski ekki að marka aðstæður á þessari mynd enda orðin ansi þreytt þarna.....

    Skautaferðin var reyndar alger snilld og á laugard. fer Henrik í afmæli svo að þetta hefst allt saman.

    SvaraEyða
  3. alveg er ég ferleg, missti af þessu bloggi!

    ég er með leiðbeiningarbleðil sem ég get netsent þér til aðstoðar við að stilla tölvuna varðandi "security certificate error", geri það eftir helgina, það er ef þetta er enn að stríða þér.

    við höfum verið að leita að fjölskylduáhugamáli og skíðin eru svarið, allir hrifnir af skíðunum en miguel fæ ég aldrei á skauta aftur, hans eina ferð endaði með úlnliðabroti...

    bestu kveðjur

    SvaraEyða