fimmtudagur, 20. janúar 2011

Vorið er farið....

....og orðið kalt aftur. Ekkert gífurlega kalt en í dag var um 2° hiti og það kallast nú ekki hlýtt, er víst eðlilegt fyrir janúar en ekki 13° eins og fyrir nokkrum dögum. Ég hef bara ekkert verið að mynda undanfarið enda allt grátt, brúnt og ljótt.......ekki beint uppáhaldstíminn, svona náttúrulega séð. Reyndar eru sumir akrar grænir, bændur búnir að sá einhverju. Spurning hvort að  það lendir undir snjó?! Það snjóaði nokkrum kornum í nótt en það var fljótt að fara.

Hef ekkert hitt nágrannakerlinguna síðan síðast. Hef reyndar ekki hitt hana nema einum þrisvar sinnum síðan að hún flutti inn, man ekki alveg hvenær það var samt. Sama er mér, langar ekkert að hitta þessa fúlu kerlingu. Ég trúi samt alltaf á hið góða í manneskjunni og hef því tekið á því að trampa ekki niður stigann, þ.e. segja strákunum að labba rólega, þó þeir séu í þungum vetrarskó. Litli kútur með sínar stuttu lappir þarf stundum að trampa smá en það er ekkert hægt að gera í því, sorry fúla kerling!

Best að setja inn eina gamla góða.........those were the days :)

Þekkiði þessar skvísur?

Látum þetta gott heita, ætlaði bara að láta vita að vorið fór í frí, örugglega til Tyrklands.......
Knús

5 ummæli:

  1. Sæl elskan.
    Þið eru nú meiri skvísurnar á þessari mynd. Eg þekki bara þig og Helgu Dóru. Pabbi þinn er nærri viss um að þetta sé Eyja sem er með ykkur, man aldrei eftir að hafa séð hana með sítt hár. Hvar er þetta tekið?????
    Bestu kveðjur þín mamma.

    SvaraEyða
  2. Ég ætlaði einmitt að giska á sömu og mamma þín;) Æðisleg mynd

    SvaraEyða
  3. Auðvitað er þetta Eyja, hver önnur. Er tekið heima hjá Helgu Dóru.

    SvaraEyða
  4. ju minn hvað þetta er æðisleg mynd...minnir mann á svoo góðan tíma!!!! Alva.

    SvaraEyða