Ég er samt ekki nógu sátt í dag......þegar ég kem heim eftir að hafa sótt strákana í gærmorgun (þeir sváfu hjá ömmu og afa) spurði nýja nágrannakonan (býr 2. hæðum fyrir neðan) hvort hún mætti spyrja mig að svolitlu. Ég hélt það nú...... hefði kannski átt að segja nei því að hún byrjaði að romsa út úr sér,í ömurlegum tón, hvort að strákarnir þyrftu að hoppa í stiganum,þ.e. 3-4 tröppur og lenda neðst, já og hvort þeir væru eiginlega á skónum inni, þeir væru hlaupandi um eins og íbúðin væri 150 fermetrar! Ég varð eiginlega hálf hissa, aldrei hefur neinn sagt neitt við okkur, mér hefur alltaf liðið vel hérna. Ég veit alveg að strákarnir eru eins og fílar þegar þeir labba niður stigann, sérstaklega í þungum vetrarskóm, þeir hafa líka hoppað nokkrar tröppur já já, ég hef oft sagt þeim að labba nú varlega en að þetta sé á hverjum degi er sko alls ekki satt. Já og hún kvartaði sérstaklega yfir því þegar þeir fara í skólann, hvað þeir hefðu þá hátt! Það er bara alls ekki satt, þeir reyndar labba/hlaupa frekar hratt niður stigann og það bergmálar talsvert frammi en ég get nú ekkert gert af því. Við búum ekki á elliheimili en erum þau einu sem eru með börn......reyndar voru börn í heimsókn hjá öðrum nágrönnum í jólafríinu, kannski heyrði hún líka í þeim. Ég, eins og alltaf, hef endalaust verið að hugsa um hvað ég hefði átt að segja, kom engu almennilegu út úr mér.......oh, alltaf saman sagan. Mér líður í fyrsta skipti illa í þessu húsi.....Seydi sagði að þetta væri góð ástæða til að fara að leita að húsi......fyrir alvöru! Samt ætti ég að spjalla aðeins við hina nágrannana fyrst, aðeins að heyra hvað þau segja, opna munninn í staðinn fyrir að ergja mig í hljóði. Ég vona svo innilega að það flytji inn barnafólk fyrir neðan okkur en Frau Pralat lést rétt fyrir áramót. Þá getur nýja nágrannakonan haft hlaupandi krakka beint fyrir ofan sig, hehe.
Annars var helgin fín, fórum út að djamma á föstudagskvöldið. Systir Seydi átti afmæli á miðvikudaginn og við ákváðum að fara öll út á lífið, þ.e. systkinin 4 og makar. Reyndar var maður Sultan heima með hnakkaverk, gat varla hreyft hausinn. Við fórum í Ratskeller, staðinn undir ráðhúsinu. Fyrst þegar við komum var enginn mættur svo að við skruppum á pöbb og drukkum 1 drykk þar en ákváðum að fara aftur seinna. Þá var sko komið líf á staðinn! Fullt af fólki, góð músík og ég og Sultan dönsuðum heilan helling. Ég hitti bæði Nadine (fóstru strákann) og sá kennarann hans Julian. Samt voru þetta mest unglingar, svona miðað við mig ;) Þar sem ég drakk ekki of mikið leið mér bara ágætlega í gær. Ældi ekkert, það er nú alger framför.......
Veit ekki hvort að ég finn einhverja mynd til að setja inn........kannski bara eina vetrarmynd svona í tilefni þess að allur snjór er farinn.
Vetrarkyrrð
Ég virðist ekki eiga í vandræðum með að logga mig inn núna. Ég læt þig samt vita ef mig vantar hjálp Stella :)
Bið að heilsa ykkur í bili
Það er umhugsunarefni hvort börnin eigi að fá að njóta sín, þ.e. þeirra réttur eða réttur kerlingarinnar til að fá frið? Þetta lyktar svolítið eins og leiðindi og tuð sem einhver "vill" sýna, bara til að sýna...
SvaraEyðaHvet ykkur í húsaskoðun systir :-) hafið það gott...
æi en leiðinlegt! hún hefur líklega aldrei verið krakki sjálf...
SvaraEyðaég ætti að koma með mína þungstígu orma þrjá í heimsókn og þá flytti kellinging nú bara út! ég er ekki viss um að ég myndi bera þetta eitthvað á borð fyrir hina nágrannana - en kannski gera strákana meðvitaða um að nágranninn hafi rætt við þig um hoppin?
vona að þetta verði ekki að einhverjum leiðindum...
bestu vetrarkveðjur í vorið þitt
Sko, málið er ekki endilega að hún hafi rætt þetta við mig heldur tónninn...hann gerði útslagið! Og svipurinn......oj bara. Svona fyrirlitningar svipur..... já, þetta allt gerði útslagið.
SvaraEyðaSagði Barbel vinkonu frá þessu áðan og hún sýndi mér úrklippu úr blaði þar sem börn hafa rétt til að vera börn, vera með hávaða osfrv. samkvæmt einhverjum dómsúrskurði. Já, fólk hér fer fyrir rétt með svona, ótrúlegt stundum. Kerlingin sagðist bara missa andann á morgnana þegar þeir eru að labba niður til að fara í skólann! Hún ætti kannski bara að reykja minna, "ilmar" allt þegar hún opnar hurðina. Já ég held að þetta sé svona tuð kelling.
Strákarnir voru með mér svo að þeir heyrðu þetta allt saman....
Ég vona líka að þetta verði að leiðindum, hingað til hefur okkur liðið vel hérna og komum við nú ný inní "gamlan" kjarna af nágrönnum.
Kveðja úr 13° hita og blíðu. Takk fyrir innlitin.
Átti auðvitað að vera "verði EKKI að leiðindum"
SvaraEyðaSæl elskan. Það á nú bara að hunsa svona kerlingar, láttu þetta nú ekki trufla ykkur. þessi stigagangur er náttúrlega eins og hljómskáli, spurning um að setja teppi á stigann þá mundi hún bara tuðað útaf einhverju öðru.
SvaraEyðaGangi þér vel og mundu að börn eru börn þótt þau þurfi líka læra að taka tillit til annarra. Þeir hefðu aldei viljað trufla frú Filips heitina það er eg viss um.
Kveðja mamma.
Já mamma, þessi stigagangur kallar á teppi en það verður aldrei......Þjóðverjar elska flísar, marmara, stein og parkett! Allt annað en teppi.
SvaraEyðaVið ætlum að reyna að labba rólegar niður en auðvitað þeysast strákarnir stundum niður enda alvanir tröppumenn.......
En það sem ég geri í minni íbúð kemur þessari kerlingu bara EKKERT við! Við fáum afar sjaldan heimsókn, höldum aldrei partý og erum sjaldan heima milli 9-15. Höfum kannski stundum hátt en það kemur engum við meðan að þetta er ekki frammi eða einhver stórrifrildi!
Ég ætla að reyna að láta þetta ekki trufla, gengur ekkert of vel núna, ég hugsa varla um annað en sjáum til hvað framtíðin býr í skauti sér :)
Sæl aftur.
SvaraEyðaEg er nú ekkert búin að gleima því þegar Seydi kom heim eftir að eg var háttuð í fyrsta skipti sem eg var í heimsókn hjá þér í þessu húsi.
Eg hélt bara að heil herdeild væri mætt á svæðið og var með hjartslátt lengi á eftir.
Vonandi gengur allt vel hafðu ekki áhyggjur.
Kveðja þín mamma.