sunnudagur, 20. febrúar 2011

Febrúarkuldi

Já það er svalt núna þessa dagana, sólin skín þó í dag en undanfarið hafa verið um 2-3 stig og skýjað. Sólin hlýjar manni aðeins en þegar kaldur vindurinn þeytir um eyrun er erfitt að halda vorfílingnum. Skrapp aðeins í almenningsgarðinn með strákana áðan, hjóluðum þangað, og það var bara asskoti kalt. Sérstaklega puttarnir urðu fyrir kuldakasti og það var því gott að koma heim, hita kakó og drekka það með rjóma plús borða osta- og skúffuköku með.

Strákarnir í garðinum

Núna er afmælistörnin búin, ég fékk síðustu gjöfina í gær þegar Bärbel kom og færði mér bók, 2 gjafakort í bíó og boð um pössun :) Við Seydi munum sem sagt geta farið í bíó með góða pössun. Ekki amalegt það.

Oft er ég að velta því fyrir mér hvort ég eigi að halda áfram þessu bloggi, hvort ég eigi kannski að fara að blogga um "heit" mál eins og um launamismun kynjanna, feminisma, rasisma, sifjaspell, misnotkun, trúmál og fleira en kemst alltaf að þeirri niðurstöðu að ég sé bara alls ekki nógu góð í rökræðu að ég geti alltaf staðið undir því sem ég skrifa........hef aldrei verið góð í að rökræða þó svo að ég hafi vissar skoðanir. Ég held þeim oft bara fyrir mig, nenni engu tuði og rifrildi.  Ég hef samt vissa skoðun á umskurði og þegar Seydi sagði að okkur væri boðið í umskurðsveislu í Aachen, hjá einhverjum fjarlægum ættingja, sagði ég NEI, þangað fer ég ekki.........það var alger undantekning að ég fór í veisluna hjá systur Seydi en í þessa færi ég ekki. Skil ekki til hvers verið er að skera heilbrigðan hluta af strákum, bara útaf hefðinni, allt annað ef að þetta er nauðsynlegt t.d. útaf þröngri forhúð. Þetta er víst "fyrsta brúðkaup" lítilla múslímskra stráka.......þeir eru ekki menn með mönnum nema vera "aflimaðir". Ég veit að kaþólikkar og gyðingar gera þetta líka og sjálfsagt fleiri en ég sé enga ástæðu til þess. Eru menn með forhúð eitthvað skítugri en hinir........ég hélt ekki! 

Nei, ég held að ég haldi mig bara við persónulegt blogg, um daglegt líf á Halterner Strasse. Hætti mér ekki út á hálar brautir..........

Sá 1.krókussinn á afmælisdaginn

Veisluborðið á sunnudaginn fyrir viku

Ég ætti að setjast inn í rúm og taka bókina "Karlar sem hata konur" með mér og lesa smá. Ná úr mér hrollinum í leiðinni þó að kakóið hafi hjálpað mikið til.

Gleðilegan konudag og Góu :)

PS. Barnaland er eitthvað bilað, verið að sameina einhverjar síður svo að ég get hvorki sett inn myndir né skrifað í vefdagbókina...........

fimmtudagur, 10. febrúar 2011

Endalaus afmæli

Nú er ekki hægt að kvarta undan kulda, ónei.....ég ætti kannski að sleppa því að tala um veðrið svona einu sinni! Efast samt um að það sé hægt, það er alltaf hægt að tala um veðrið, endalaust. En vorið er eitthvað að láta sjá sig aftur núna, 10° hiti dag eftir dag, á samt að kólna næstu daga og fara að rigna en samt enginn vetur í augsýn. Páskaliljurnar eru farnar að láta sjá sig.......sjá hér:

Þær hafa reyndar stækkað síðan þessi mynd var tekin

Alveg indælt að finna vorið koma, finna skítalykt af ökrunum á leiðinni í vinnuna, mæta bændum með skítadreifara og ekki gleyma snjóklukkunum........

Tók eftir þessum þegar ég skrapp í bókasafnið

Nóg að gera þessa dagana, reyndar ekkert brjálað að gera í vinnunni en meira í einhverju standi. Er fegin að afmæli Julians er búið, var ekkert stress samt en því fylgir alltaf undirbúningur þó að hann hafi haldið það á innileiksvæði. Næsta afmæli er svo á laugardaginn þegar Florian og Bärbel koma í kaffi, á sunnudaginn ætlar fjölskyldan að koma í kaffi og mat. Spurning um að hafa bara keyptar kökur handa þeim, held að það sé best! Svo vanþakklátt þetta lið ;) Ætla svo að reyna að troða í þau argentínskri kjötsúpu en hvort að það verður "the hit" veit ég ekki, verð með eitthvað annað handa krökkunum allavega. Á eftir að ákveða hvað. Tengdapabbi er nú svo "bilaður" að hann vill bara heilagt kjöt.......sem er svo kannski ekkert heilagt..hver veit. Oft er lífrænt ekkert lífrænt.....allt til.  Ekki myndi ég láta einhverja trú ákveða það hvað ég ætti að borða og hvað ekki, dytti það bara aldrei í hug. Gæti nú haldið heila ræðu um svínakjötsát, eða ekki svínakjötsát. Meiri vitleysan finnst mér. Mér finnst nú nóg að þurfa að fara eftir lögum og reglum en að þurfa/vilja svo að fylgja einhverjum trúarreglum, neeeeeeeeeee. Nóg um það, hehe.

Eitthvað er að þykkna upp núna, ég meina svona veðurslega séð, rigningin sennilega á leiðinni. Ætli þvotturinn minn verði þá nokkuð þurru þó hann standi undir þakskegginu?? Ég set hann þá bara inn.

Loksins eru komnir nýir nágrannar við hliðina á okkur, hjón með 1 son sem er 4 ára. Loksins fleiri börn í stigaganginn. Þau eru svona hálfflutt inn sýnist mér en ég er fegin að það kom ekki enn einn eldri borgarinn í húsið. Ekki að ég hafi neitt á móti þeim enda faðir minn, mun bráðlega, eldri borgari með rentu. Samt eru eldri borgarar ansi duglegir að kvarta og kveina. Eru núna að mótmæla því að ný lög, um að leikskólar verði leyfðir í íbúðarhverfum, komi kannski!! Sérstakt eldri borgara ráð CDU (kristilegir demókratar) mótmælir (já flest er nú til). Þjóðverjar eru bara orðnir svo óvanir barnahávaða, þ.e. hlátri, gráti, öskrum og því sem þeim fylgir, að þau hrökkva upp í hvert skipti sem heyrist smá hljóð.  Þessir borgarar voru sennilega aldrei börn, allavega laaaaaaangt síðan.

Þeir sem lesa þetta fá stórt knús frá mér :)