Þær hafa reyndar stækkað síðan þessi mynd var tekin
Alveg indælt að finna vorið koma, finna skítalykt af ökrunum á leiðinni í vinnuna, mæta bændum með skítadreifara og ekki gleyma snjóklukkunum........
Tók eftir þessum þegar ég skrapp í bókasafnið
Nóg að gera þessa dagana, reyndar ekkert brjálað að gera í vinnunni en meira í einhverju standi. Er fegin að afmæli Julians er búið, var ekkert stress samt en því fylgir alltaf undirbúningur þó að hann hafi haldið það á innileiksvæði. Næsta afmæli er svo á laugardaginn þegar Florian og Bärbel koma í kaffi, á sunnudaginn ætlar fjölskyldan að koma í kaffi og mat. Spurning um að hafa bara keyptar kökur handa þeim, held að það sé best! Svo vanþakklátt þetta lið ;) Ætla svo að reyna að troða í þau argentínskri kjötsúpu en hvort að það verður "the hit" veit ég ekki, verð með eitthvað annað handa krökkunum allavega. Á eftir að ákveða hvað. Tengdapabbi er nú svo "bilaður" að hann vill bara heilagt kjöt.......sem er svo kannski ekkert heilagt..hver veit. Oft er lífrænt ekkert lífrænt.....allt til. Ekki myndi ég láta einhverja trú ákveða það hvað ég ætti að borða og hvað ekki, dytti það bara aldrei í hug. Gæti nú haldið heila ræðu um svínakjötsát, eða ekki svínakjötsát. Meiri vitleysan finnst mér. Mér finnst nú nóg að þurfa að fara eftir lögum og reglum en að þurfa/vilja svo að fylgja einhverjum trúarreglum, neeeeeeeeeee. Nóg um það, hehe.
Eitthvað er að þykkna upp núna, ég meina svona veðurslega séð, rigningin sennilega á leiðinni. Ætli þvotturinn minn verði þá nokkuð þurru þó hann standi undir þakskegginu?? Ég set hann þá bara inn.
Loksins eru komnir nýir nágrannar við hliðina á okkur, hjón með 1 son sem er 4 ára. Loksins fleiri börn í stigaganginn. Þau eru svona hálfflutt inn sýnist mér en ég er fegin að það kom ekki enn einn eldri borgarinn í húsið. Ekki að ég hafi neitt á móti þeim enda faðir minn, mun bráðlega, eldri borgari með rentu. Samt eru eldri borgarar ansi duglegir að kvarta og kveina. Eru núna að mótmæla því að ný lög, um að leikskólar verði leyfðir í íbúðarhverfum, komi kannski!! Sérstakt eldri borgara ráð CDU (kristilegir demókratar) mótmælir (já flest er nú til). Þjóðverjar eru bara orðnir svo óvanir barnahávaða, þ.e. hlátri, gráti, öskrum og því sem þeim fylgir, að þau hrökkva upp í hvert skipti sem heyrist smá hljóð. Þessir borgarar voru sennilega aldrei börn, allavega laaaaaaangt síðan.
Þeir sem lesa þetta fá stórt knús frá mér :)
Sæl elskan.
SvaraEyðaEg er búin að meðtaka knúsið. Sendi þér stórt knús til baka.
Kv. Mamma
hey, takk fyrir knúsið..og hér er knús til baka á þig:)
SvaraEyðaGóða helgi og vonandi lukkast fjölskyluafmælið vel:*
kveðja,
Rakel sys
Takk fyrir knúsið, gef þér stórt þegar við sjáumst í maí, Unnur Mjöll.
SvaraEyðaJá takk takk fyrir knúsin, og já Unnur, fæ bara MEGA knús í maí :)
SvaraEyðaGóða helgi
Kæra systir, til hamingju með afmælið í dag. Kveðja frá okkur öllum hér í Höfðabrekkunni.
SvaraEyðaTakk fyrir Unnur mín :) See you <3
SvaraEyða