Strákarnir í garðinum
Núna er afmælistörnin búin, ég fékk síðustu gjöfina í gær þegar Bärbel kom og færði mér bók, 2 gjafakort í bíó og boð um pössun :) Við Seydi munum sem sagt geta farið í bíó með góða pössun. Ekki amalegt það.
Oft er ég að velta því fyrir mér hvort ég eigi að halda áfram þessu bloggi, hvort ég eigi kannski að fara að blogga um "heit" mál eins og um launamismun kynjanna, feminisma, rasisma, sifjaspell, misnotkun, trúmál og fleira en kemst alltaf að þeirri niðurstöðu að ég sé bara alls ekki nógu góð í rökræðu að ég geti alltaf staðið undir því sem ég skrifa........hef aldrei verið góð í að rökræða þó svo að ég hafi vissar skoðanir. Ég held þeim oft bara fyrir mig, nenni engu tuði og rifrildi. Ég hef samt vissa skoðun á umskurði og þegar Seydi sagði að okkur væri boðið í umskurðsveislu í Aachen, hjá einhverjum fjarlægum ættingja, sagði ég NEI, þangað fer ég ekki.........það var alger undantekning að ég fór í veisluna hjá systur Seydi en í þessa færi ég ekki. Skil ekki til hvers verið er að skera heilbrigðan hluta af strákum, bara útaf hefðinni, allt annað ef að þetta er nauðsynlegt t.d. útaf þröngri forhúð. Þetta er víst "fyrsta brúðkaup" lítilla múslímskra stráka.......þeir eru ekki menn með mönnum nema vera "aflimaðir". Ég veit að kaþólikkar og gyðingar gera þetta líka og sjálfsagt fleiri en ég sé enga ástæðu til þess. Eru menn með forhúð eitthvað skítugri en hinir........ég hélt ekki!
Nei, ég held að ég haldi mig bara við persónulegt blogg, um daglegt líf á Halterner Strasse. Hætti mér ekki út á hálar brautir..........
Sá 1.krókussinn á afmælisdaginn
Veisluborðið á sunnudaginn fyrir viku
Ég ætti að setjast inn í rúm og taka bókina "Karlar sem hata konur" með mér og lesa smá. Ná úr mér hrollinum í leiðinni þó að kakóið hafi hjálpað mikið til.
Gleðilegan konudag og Góu :)
PS. Barnaland er eitthvað bilað, verið að sameina einhverjar síður svo að ég get hvorki sett inn myndir né skrifað í vefdagbókina...........
PS. Barnaland er eitthvað bilað, verið að sameina einhverjar síður svo að ég get hvorki sett inn myndir né skrifað í vefdagbókina...........
Sæl elskan.
SvaraEyðaHér er meira vor en hjá þér +7°í dag og æskusveitin mín skartaði sínu fegursta, kaffihlaðborðið hjá Sigrúnu skólasystur klikkaði ekki frekar en fyrri daginn.
Prinsarnir eru hálf kuldalegir á myndinni.
Nei Inga mín farðu nú ekki að blogga um einhvar heit mál, það eru allt of margir "vitleisingar" í því og þikjast hafa vit á öllu.
Vona að þú hafir náð úr þér hrollinum og eigir góða viku frammundan.
Bestu kveðjur þín mamma.
P.S. Bíð eftir að barnaland komist í lag.
Sæl. Haltu áfram þessu venjulega bloggi og enga vitleysu.
SvaraEyðaNáðirðu hrollinum úr þér með því að lesa "Karlar sem hata konur" ? Þú ert þá örugglega sú fyrsta sem gerir það.
Sjáumst, U.
Hey Unnsa, ég er örugglega ekki komin nógu langt til að fá hroll við að lesa......Er alltof löt að lesa :)
SvaraEyðaHeyrðu og já, miðarnir eru komnir í hús :)