sunnudagur, 27. mars 2011

Klukkufærsla og annað

Voðalega finnst mér vitlaust að færa klukkuna á vorin og haustin, gegnir engum tilgangi, absolut engum. Átti að spara rafmagn þegar þetta var tekið upp aftur á níunda áratugnum. Í dag segja allir að þetta skipti engu máli, rafmagnslega séð, ruglar bara alla í ríminu, 20% meiri líkur á hjartaáfalli þegar klukkan er færð áfram (eins og í nótt), fleiri árekstrar fyrstu dagana, kýrnar vita ekkert í sinn kýrhaus og mjólka bara áfram á sínum tíma en ég hef heyrt að bændurnir venji þær hægt og sígandi við klukkufærslunni! Þvílík vitleysa........bara að hætta þessu eins og Rússar munu gera, þeir ætla að halda sumartímanum áfram og munu því ekki færa klukkuna aftur í haust. Vonandi vakna þeir sem ráða þessu hér og hætta þessu bulli........

Hef verið löt með myndavélina undanfarið, hef ekkert verið að mynda, hvorki vorið né strákana en ég lofa að bæta úr því fljótlega. Veit ekki hvort ég finn einhverjar mynd til að setja með núna.........

Fann mynd úr sirkus Roncalli :)
Við skemmtum okkur vel í sirkus. Henrik var samt á mörkunum að vera nógu gamall (þroskaður) og leiddist stundum, fannst þó strákurinn með fótboltana geggjaður og kallaði "zugabe" (meira) og klappaði mikið. Ég á eftir að setja sirkus myndir inn á síður strákanna, geri það líka fljótlega.......

Foreldraviðtöl í næstu viku, hjá Henrik á morgun (og ég ætla að taka mér frí í vinnunni) og hjá Julian á þriðjudaginn. Ég ætla að undirbúa mig vel og mæta með bros á vör, ekki láta vaða yfir mig og ætla að svara fyrir mig ef mér passar ekki eitthvað. Vonandi stend ég við þetta........

Vorið fór í pásu í gær, það var svalt og rigndi smá en í dag er sólin komin aftur. Ekki kannski alveg eins hlýtt og undanfarið en vorlegt og fínt. Trén eru aðeins farin að grænka og páskaliljurnar blómstra, þó að það séu ekki páskar enda eru þeir mjög seint í ár. Þá ætlum við að skella okkur til Ungverjalands í 5 daga, verðum á sama hóteli og karlakórinn Hreimur. Verður ekki leiðinlegt að hitta þau gömlu og alla hina, verður líka gaman að koma að Balaton vatninu. Vonandi verður veðrið bara gott, ekki rigning, ég þoli ekki rigningu þegar ég er í fríi.........

Nágrannakonuherfan brosti til okkar um daginn.........meira að segja tvisvar! Hún er kannski búin að átta sig á því að við erum engin skrýmsli. Ég reyndar bannaði strákunum að hoppa í stiganum en annars höfum við ekki breytt neinu þó að ég hafi orðið ofur viðkvæm fyrir látum eftir að hún lét mig heyraða........svo bara sá ég að ég var að nöldra í strákunum útaf einhverju sem skipti engu máli og börn eru bara börn OG þau mega vera með hávaða!!!

Skellti mér í IKEA í gær og keypti aðra hillu á svalirnar. Aðeins farin að undirbúa vorið/sumarið en þó ekki búin að kaupa sumarblómin. Ætla samt ekki að geyma það eins lengi og í fyrra en meðan að það frýs af og til á nóttunni þori ég ekki að kaupa blóm. Fylgist bara með hvenær blómakonurnar hérna í hverfinu setja sín upp, þá get ég farið að kaupa :)

Kveðjur af Halterner Strasse

laugardagur, 19. mars 2011

Pabbi



Í dag er elsku pabbi minn sjötugur..........alveg ótrúlegt að hann sé virkilega orðinn 70 ára! Þegar ég var yngri var bara gamalt fólk 70 ára........ekki pabbi minn en þar sem ég eldist nú líka breytist hugarfarið og ég læri af reynslunni, við eldumst jú öll. Pabbi er góð fyrirmynd, fyrir honum er mikilvægast að gera sitt besta, veit ekki hvað hann sagði það oft við mig þegar ég var yngri, þennan boðskap gefur hann svo áfram til sona minna, ég líka. Ég reyndi alltaf að gera mitt besta og hingað til hefur það bara virkað vel. Ég gef það líka áfram að það er mikilvægara að vera í hreinum fötum heldur en að þau séu af dýrustu sort, þetta gaf pabbi mér líka á lífsleiðinni.  Þó svo að við höfum ekki alltaf sömu skoðun á mörgu í lífinu þakka ég pabba fyrir hvernig ég er í dag (með hjálp elsku mömmu líka) og ég er þakklát fyrir það hvað þeim tókst vel til með uppeldið á okkur öllum fjórum ;) hehe

Þakkir fyrir brúnu augun, þau björguðu oft sjálfstraustinu á síðustu og verstu, hahahaha.


Ég þakka samt ekki fyrir stuttar lappir og fótboltakálfa.........þó svo að ég hafi lært að lifa með þeim.

Pabbi hefur líka glatt mörg hjörtu á ævinni, ung sem gömul og heldur því vonandi áfram næstu áratugana........

Hlakka til að hitta "þann gamla" í næsta mánuði og svo aftur í sumar. Alles Gute elsku pabbi.

Þín Inga Björk
PS: Þakkir til foreldra minn fyrir valið á nafninu mínu, passar vel við svona heimsborgara eins og mig :)

laugardagur, 5. mars 2011

Breyta og bæta

Ég er í þvílíku stuði til að breyta og bæta heima hjá mér núna. Keypti nýtt teppi og ljós í stofuna, breytti aðeins í eldhúsinu í dag og færði myndir hingað og þangað. Nú þarf ég að fá tíma hjá "rafvirkjanum" til að setja upp ljósið, treysti mér ekki alveg til þess að gera það sjálf........Hlýtur að vera vorið sem ýtir á mig að breyta til og bæta. Er samt ekki nógu dugleg að breyta sjálfri mér, þ.e. gera æfingar og hreyfa mig! Nenni bara engan vegin að vakna rúmlega 6 til að sprikla á hálftíma eða svo........fer nú nógu seint að sofa stundum. Ég sé því ekki fram á að losna við þessi aukakíló sem hanga á mér, eða réttara sagt, sitja sem fastast. En svona er þetta þegar ég geri ekkert í þessu af alvöru, aginn hefur aldrei verið mín sterka hlið og mér finnst bara gott að borða það sem er gott á bragðið, já OK, ananas er alveg góður, gúrkur líka, sólblómafræ einnig EN ég borða bara það sem ég vil, sama hvað það er og sama hvað stendur á innihaldslýsingunni (svona næstum því alveg sama). Er reyndar byrjuð að drekka te á morgnana í staðinn fyrir kaffi, bara svona að prófa en mér var stundum illt í mallanum og einhver gangur þar í gangi....... Ég kaupi örsjaldan lífrænt ræktað grænmeti eða kjöt, finnst verðlagið ekki sameinast gæðum og svo finnst mér ekkert að "venjulegum" mat. Hef aldrei hugsað mikið um hin og þessi aukaefni, eiturefni og ég veit ekki hvað. Hræðsluáróður kemst ekki að í mínum heila, fer inn um eitt og út um annað. Alveg það sama með þessi blessuðu gróðurhúsaáhrif en það er annað mál. Best að koma með mynd.

Blíða á 1.leik Henriks (3.frá vinstri)

Nú er leiktímabilið byrjað hjá Henrik, sem þýðir að flestir laugardagar næstu mánuðina fara í vakna snemma og drífa sig á leikina sem byrja kl.10! Æi, við höfum bara gott af því og Henrik stendur sig vel í boltanum og hefur mikinn áhuga.  Hann er líka ansi góður, þó ég segi sjálf frá, er búinn að æfa í tæpt ár núna og hefur tekið miklum framförum. Julian hefur líka gaman af að vera með og hvetur bróður sinn vel.

16.mars ætlum við í sirkus Roncalli  (ýta á Circus Roncalli) sem heldur upp á 35 ára afmælið sitt hér í Recklinghausen, þ.e. byrjar hér. Ætlum að fara með Tarek, mömmu hans og ömmu. Verður örugglega fjör þó svo að Henrik missi af fótboltaæfingu ;)

 Aaaaaðeins farið að gulna, vorið skammt undan

Þó svo að það hafi verið kalt í dag (4°) er vorið komið, ég leyfi mér að halda því fram. Síðustu daga hefur verið sól og 9° hiti en svalt á næturna. Sólin ætlar svo að koma aftur á morgun til að ylja okkur, líka á mánudaginn þegar Karnevalið nær hápunkti með skrúðgöngu og látum. Við munum sennilega labba okkur í bæinn og næla í nokkra nammimola í poka. Vonandi ekki bara vonda mola með engu bragði........

Góða helgi, löng helgi hér, skólafrí á mánudaginn :)