Ég er í þvílíku stuði til að breyta og bæta heima hjá mér núna. Keypti nýtt teppi og ljós í stofuna, breytti aðeins í eldhúsinu í dag og færði myndir hingað og þangað. Nú þarf ég að fá tíma hjá "rafvirkjanum" til að setja upp ljósið, treysti mér ekki alveg til þess að gera það sjálf........Hlýtur að vera vorið sem ýtir á mig að breyta til og bæta. Er samt ekki nógu dugleg að breyta sjálfri mér, þ.e. gera æfingar og hreyfa mig! Nenni bara engan vegin að vakna rúmlega 6 til að sprikla á hálftíma eða svo........fer nú nógu seint að sofa stundum. Ég sé því ekki fram á að losna við þessi aukakíló sem hanga á mér, eða réttara sagt, sitja sem fastast. En svona er þetta þegar ég geri ekkert í þessu af alvöru, aginn hefur aldrei verið mín sterka hlið og mér finnst bara gott að borða það sem er gott á bragðið, já OK, ananas er alveg góður, gúrkur líka, sólblómafræ einnig EN ég borða bara það sem ég vil, sama hvað það er og sama hvað stendur á innihaldslýsingunni (svona næstum því alveg sama). Er reyndar byrjuð að drekka te á morgnana í staðinn fyrir kaffi, bara svona að prófa en mér var stundum illt í mallanum og einhver gangur þar í gangi....... Ég kaupi örsjaldan lífrænt ræktað grænmeti eða kjöt, finnst verðlagið ekki sameinast gæðum og svo finnst mér ekkert að "venjulegum" mat. Hef aldrei hugsað mikið um hin og þessi aukaefni, eiturefni og ég veit ekki hvað. Hræðsluáróður kemst ekki að í mínum heila, fer inn um eitt og út um annað. Alveg það sama með þessi blessuðu gróðurhúsaáhrif en það er annað mál. Best að koma með mynd.

Blíða á 1.leik Henriks (3.frá vinstri)
Nú er leiktímabilið byrjað hjá Henrik, sem þýðir að flestir laugardagar næstu mánuðina fara í vakna snemma og drífa sig á leikina sem byrja kl.10! Æi, við höfum bara gott af því og Henrik stendur sig vel í boltanum og hefur mikinn áhuga. Hann er líka ansi góður, þó ég segi sjálf frá, er búinn að æfa í tæpt ár núna og hefur tekið miklum framförum. Julian hefur líka gaman af að vera með og hvetur bróður sinn vel.
16.mars ætlum við í sirkus
Roncalli (ýta á Circus Roncalli) sem heldur upp á 35 ára afmælið sitt hér í Recklinghausen, þ.e. byrjar hér. Ætlum að fara með Tarek, mömmu hans og ömmu. Verður örugglega fjör þó svo að Henrik missi af fótboltaæfingu ;)
Aaaaaðeins farið að gulna, vorið skammt undan
Þó svo að það hafi verið kalt í dag (4°) er vorið komið, ég leyfi mér að halda því fram. Síðustu daga hefur verið sól og 9° hiti en svalt á næturna. Sólin ætlar svo að koma aftur á morgun til að ylja okkur, líka á mánudaginn þegar
Karnevalið nær hápunkti með skrúðgöngu og látum. Við munum sennilega labba okkur í bæinn og næla í nokkra nammimola í poka. Vonandi ekki bara vonda mola með engu bragði........
Góða helgi, löng helgi hér, skólafrí á mánudaginn :)
já vorið er sko tíminn - ég er enn að bíða eftir því að það láti sjá sig hér hjá mér, og eitthvað ætlar að teygjast á biðinni því það falla hér núna snjókorn á allt og alla...
SvaraEyðaSæl elskan. Gaman að sjá hvað þú er dugleg það mættu fleiri taka sér þig til fyrirmyndar.
SvaraEyðaGóða skemmtun á "karnevaldaginn"
Bestu kveðjur þín mamma.