sunnudagur, 27. mars 2011

Klukkufærsla og annað

Voðalega finnst mér vitlaust að færa klukkuna á vorin og haustin, gegnir engum tilgangi, absolut engum. Átti að spara rafmagn þegar þetta var tekið upp aftur á níunda áratugnum. Í dag segja allir að þetta skipti engu máli, rafmagnslega séð, ruglar bara alla í ríminu, 20% meiri líkur á hjartaáfalli þegar klukkan er færð áfram (eins og í nótt), fleiri árekstrar fyrstu dagana, kýrnar vita ekkert í sinn kýrhaus og mjólka bara áfram á sínum tíma en ég hef heyrt að bændurnir venji þær hægt og sígandi við klukkufærslunni! Þvílík vitleysa........bara að hætta þessu eins og Rússar munu gera, þeir ætla að halda sumartímanum áfram og munu því ekki færa klukkuna aftur í haust. Vonandi vakna þeir sem ráða þessu hér og hætta þessu bulli........

Hef verið löt með myndavélina undanfarið, hef ekkert verið að mynda, hvorki vorið né strákana en ég lofa að bæta úr því fljótlega. Veit ekki hvort ég finn einhverjar mynd til að setja með núna.........

Fann mynd úr sirkus Roncalli :)
Við skemmtum okkur vel í sirkus. Henrik var samt á mörkunum að vera nógu gamall (þroskaður) og leiddist stundum, fannst þó strákurinn með fótboltana geggjaður og kallaði "zugabe" (meira) og klappaði mikið. Ég á eftir að setja sirkus myndir inn á síður strákanna, geri það líka fljótlega.......

Foreldraviðtöl í næstu viku, hjá Henrik á morgun (og ég ætla að taka mér frí í vinnunni) og hjá Julian á þriðjudaginn. Ég ætla að undirbúa mig vel og mæta með bros á vör, ekki láta vaða yfir mig og ætla að svara fyrir mig ef mér passar ekki eitthvað. Vonandi stend ég við þetta........

Vorið fór í pásu í gær, það var svalt og rigndi smá en í dag er sólin komin aftur. Ekki kannski alveg eins hlýtt og undanfarið en vorlegt og fínt. Trén eru aðeins farin að grænka og páskaliljurnar blómstra, þó að það séu ekki páskar enda eru þeir mjög seint í ár. Þá ætlum við að skella okkur til Ungverjalands í 5 daga, verðum á sama hóteli og karlakórinn Hreimur. Verður ekki leiðinlegt að hitta þau gömlu og alla hina, verður líka gaman að koma að Balaton vatninu. Vonandi verður veðrið bara gott, ekki rigning, ég þoli ekki rigningu þegar ég er í fríi.........

Nágrannakonuherfan brosti til okkar um daginn.........meira að segja tvisvar! Hún er kannski búin að átta sig á því að við erum engin skrýmsli. Ég reyndar bannaði strákunum að hoppa í stiganum en annars höfum við ekki breytt neinu þó að ég hafi orðið ofur viðkvæm fyrir látum eftir að hún lét mig heyraða........svo bara sá ég að ég var að nöldra í strákunum útaf einhverju sem skipti engu máli og börn eru bara börn OG þau mega vera með hávaða!!!

Skellti mér í IKEA í gær og keypti aðra hillu á svalirnar. Aðeins farin að undirbúa vorið/sumarið en þó ekki búin að kaupa sumarblómin. Ætla samt ekki að geyma það eins lengi og í fyrra en meðan að það frýs af og til á nóttunni þori ég ekki að kaupa blóm. Fylgist bara með hvenær blómakonurnar hérna í hverfinu setja sín upp, þá get ég farið að kaupa :)

Kveðjur af Halterner Strasse

2 ummæli:

  1. já við erum sko sömu skoðunnar þegar kemur að tímatilfærslum, gersamlega óþolandi! við erum rétt að ná okkur hér núna tveim vikum síðar og ég er enn fúl út í morgunmyrkrið...
    hér er enn næturfrost svo að blómakaupin bíða líka hjá mér.
    gangi þér vel í foreldraviðtalinu!

    SvaraEyða
  2. Sæl elskan.
    Hahahaha kanski verður "herfan "vinkona þín fyrir rest hvar veit.
    Vona að allt gangi vel í foreldraviðtalinu og láttu ekki slá þig útaf laginu og haltu ró þinni.
    Hafið það gott elskurnar jafnið ykkur á tímamismuninum.
    Kveðja mamma.

    SvaraEyða