Ég keypti mér samt hlýra-, stutt- og langermabol en eiginlega ætla ég að bíða með að kaupa mér mikið af fötum þangað til að tískursérfræðingurinn, hún Rakel Dögg, kemur í heimsókn. Ætla að fá hana með mér í búð(ir). Hún má kaupa sér eitthvað í leiðinni líka. Fæ svo Unni og Kristey til að dæma með henni, þær mega líka kaupa og skoða, ekki málið :)
Halterner Strasse
Þar sem vorið er komið, fer það að verða nauðsynlegt að fækka fötum nema þá að stikna. Þetta er allt í lagi ennþá, ekki það heitt að maður þurfi að sýna leggi og upphandleggi EN það styttist í það og þá verður maður sko að vera reddí með rakaða leggi og stífa bingóvöðva! Tala nú ekki um að fara í sund.....ÆI, fólk horfir þá bara, mér er stundum alveg sama en ekki alltaf........ ég reyni bara að vera sem mest ofan í lauginni eða liggjandi á handklæði, labba sem minnst um og þá helst með "pareo" utan um mig.
NEI, ég er ekki að fara í átak..........er alltof agalaus til þess og greinilega ekki alveg nógu óánægð til að byrja í átaki.
Sæl elskan mín fyrirgefðu, eg hugsaði ekki út í það þegar eg náði í pabba þinn að stuttu leggirnir erfast.
SvaraEyðaMér hefur nú alltaf fundist þú ágæt eins og þú ert og holdleysið á ofanverðunni hefur þú frá mér.
Mátunarklefar virka nú öfugt á mig alltaf svo flott í klefanum, kann svo ekki við mig í flíkinni þegar heim er komið og fer bara í sömu gömlu druslurnar.
Það verður mátað í maí ef eg þekki ykkur systur rétt.
Vertu bara ánægð með þig eins og þú ert, bara frábær.
Hafðu það gott. Kveðja þín mamma.
Haha mamma, góður þessi! Ég hefði einmitt haldið að stuttu leggirnir hefðu ekki farið framhjá þér í fótboltastuttbuxum, hahahaha.
SvaraEyðaFyrir "holdleysið að ofan" (eins og þú kallar það) þakka ég nú bara fyrir, er þá allavega með sléttan maga þó ekki fari fyrir miklu holdi þar fyrir ofan ;)
Já já, ég er alveg frábær. Er samt fegin að hafa ekki eignast stelpu, sem hefði svo kannski erft stuttu lappirnar ;)
voðalegar erum við! hraustar og getum staðið stöðugar, skiptir það ekki mestu?
SvaraEyðaég get sagt þér með sanni að eftir heilsársátak, þá hef ég nú styrkt mig helling en leggjanett verð ég aldrei og þó ekki sé hægt að draga húðina frá rifbeinunum á mér...
ég er farin að vera voðalega ópraktísk, ég versla allt sem mér líst rosalega vel á, fer svo heim og máta allt í mínu umhverfi - skila svo bara öllu sem ég sættist ekki við! veit ekki hvort skilamöguleikarnir séu hinir sömu hjá þér, en þetta er mitt ráð til þín...
Alveg rétt hjá þér Stella mín...þessvegna kannski, nenni ég ekki í átak ;) Er ekki nógu slæm, valhoppa hér upp á 4.hæð og blæs ekki úr nös og vippa mér enn yfir girðingar.
SvaraEyðaÉg veit að hjá H&M er lítið mál að skila en með aðrar búðir veit ég ekki. Ég ætti kannski að fara að panta af netinu.....
Góða helgi
átak og ekki átak, meira bullið;) þig langar að geta hoppað yfir girðinar og valhoppað upp stiga áfram í "ellinni" þannig að hreyfing og góð fæða er alls ekki spurning um mátunarklefann heldur að fjárfesta áfram í góðum skrokk, sem þú ert svo sannarlega með mín kæra:) ...bara alveg úrvals gen frá þeim gömlu, en ég skil þið með fæturna, ég var einmitt svo heppin að fá stuttu fótleggina hans pabba OG langa hrygginn hennar mömmu þannig að samsetningin er alveg flawless;)
SvaraEyða......en mun EKKI koma í veg fyrir að við munum versla af okkur rassgatið í maí, sjæse hvað ég hlakka til að stökkva niður í bæ í búður VÁ)
síjú:) litla R-ið
úff, hunsaðu ásláttarvillurnar hér að ofan....
SvaraEyðakveðja, þú veist hver;)