þriðjudagur, 3. maí 2011

LOKSINS

Loksins er ég búin að panta miða heim til Íslands í sumar! Er búin að vera með hnút í maganum útaf þessu leeeengi.......fyrst var að ákveða hvað ég ætti að vera lengi, svo var að ákveða hvort ég flygi frá Dusseldorf eða Köln, nú eða með Icelandair (sem útilokaðist snemma vegna ofurverðs og fjarlægðar frá flugvöllum) eða Express (sem útilokaðist líka vegna þess á hvaða dögum þeir fljúga, já og fjarlægðar til Hahn). Það er alltaf smá magaverkur að panta miðana heim. Ég vissi reyndar alveg upp á hár hvaða dag ég YRÐI að fljúga, kemur bara 21.júlí til greina þar sem skólafríin byrja daginn eftir þetta árið. Ég bara VERÐ að komast á Mærudaga, þó að ég muni missa af opnunarhátíðinni.  Næst þurfti að ákveða hvað ég yrði lengi........Julian fannst nú mánuður of stutt! Ég ákvað því að vera í mánuð + 5 daga eða til 26.ágúst. Nú er næsti magaverkur að komast heim til Húsavíkur þarna á föstudeginum.......ætli það sé ekki allt uppselt í flug, já og svo verð ég að gista einhvers staðar á fimmtudagskvöldinu! Eilífðar magaverkur er þetta..........Ég get engan veginn ætlast til þess að einhver sæki mig á miðjum Mærudögum, eða þannig. En það kemur seinna í ljós hvernig ég kem, en ég kem allavega. Verið bara viðbúin gott fólk. Ekki búast samt við því að ég heimsæki ALLA, ef einhver vill sjá mig verð ég á Garðarsbraut 53, jafnvel úti á palli í góðu veðri. Ætli ég verði ekki eitthvað á labbinu, í sundi eða á djamminu, held það nú..........

Er ekki kominn tími á mynd. Extra handa henni Unni minni sem er nú að koma til mín á sunnudaginn ásamt fríðu föruneyti, þeim Rakel litlu sys og Kristey frábæru. Mikið hlakka ég til, við hlökkum ÖLL til.

Adidas lagersalan í Herzogenaurach

Við komum aðeins við hjá adidas og Puma á leiðinni heim frá Ungverjalandi. Ætla nú ekkert að fara að tíunda þá ferð of mikið, skrifaði aðeins hjá strákunum og svo var mamma ofurkvittari á staðnum svo að hún veit svona nokkurn veginn hvernig ferðin var og svona. Flestir vita líka að viftureimin fór í bílnum, fór alveg í tætlur en sem betur fer ekki á ferð heldur bara akkúrat þegar við ætluðum út af bílastæðinu á hótelinu. Heppin þar. Til að gera langa sögu stutta fengum við ekki reim fyrr en á þriðjudegi eftir páska, seinni partinn........Seydi setti hana sjálfur á og bölvaði sjálfum sér að hafa ekki tekið reim með, hafði tekið hana úr bílnum áður en við lögðum af stað, alveg satt! Við vorum því eina nótt í viðbót á Club Tihany og gistum svo í Regensburg á leiðinni heim. Ekki hægt að keyra heim alla nóttina, hefðum ALDREI getað það. Sem varð svo til þess að við höfðum tíma til að fara á lagersölurnar, gaman af því. Ég keypti mér eina skó........aðrir keyptu sér MÖRG pör. Sjá mynd......
Seydi á flesta af þessum......

Strákarnir fengu Bayern Munchen bol og stuttbuxur, einhver pör af skóm og bakpoka. Eyddum meira þarna heldur en í öllu fríinu........

Þetta er allt saman ágætt. Veðrið er fínt, aðeins svalt í gær og í dag, sennilega á morgun líka en svo bara hækkandi hitastig og sól. Er reyndar ekkert sniðugt fyrir bændur eða kafteina á Rínarskipunum, þurrkar og lækkandi árborð eru ekki góð merki fyrir góða uppskeru eða flutninga. Veðrið er samt bara eins og það er, ekkert hægt að breyta því. Ég vona bara að ég fái gott veður á Fróni, pant ekki fá rigningu og innan við 10°, DANKE.

Verð nú að setja eina mynd frá Ungverjalandi. Tihany þorp

Þetta er orðið gott.........loksins þegar ég blogga skrifa ég heila ritgerð, eins og mér finnst/fannst ÖMURLEGT að skrifa ritgerð, oj bara. 

Segi bara, eigið góða viku og við sjáumst svo bara :)

5 ummæli:

  1. Gamla rugluð, þetta var ég Valla og co Egilsstöðum

    SvaraEyða
  2. heyrðu vina, helduru að ég sækji ekki þig & höfðingjana á völlinn og þið gistið hjá mér, hvaða rugl er þetta;) ég verð örugglega ekki farin norður...ef svo færi, þá náttúrulega gætir þú allavega gist heima hjá mér ef þú bara fengir einhvern til að sækja þig á völlinn og koma þér hingað:)
    Allavega ekkert til að fá hnút yfir er það;) Er Seydi að koma líka?

    Sjáumst eftir fjóra...vei:)
    RDH

    p.s. heldur þú að ég geti ekki keypt eitthvað krydd með rauðu loki þó ég noti það ekki sjálf, meiri asninn;)

    SvaraEyða
  3. Jæja já, komin með gistingu á 2 stöðum! Ég bjóst nú við því að þið væruð farin norður góða systir og fékk því gistingu hjá Helgu Jóhönnu, hún býr nánast á vellinum. Svo gætir þú bara sótt mig daginn eftir til að ég kæmist í flug, þ.e. ef þú ert enn fyrir sunnan. Ræðum þetta betur í næstu viku ;) Hlakka mikið til, þarf samt að þrífa stofuna áður en þið komið, þ.e. gólfið! hehe.

    SvaraEyða
  4. góða skemmtun næstu daga - alltaf gaman að fá heimsóknir...

    SvaraEyða