Prinsessurnar fóru beint í ísinn þegar þær komu
Það er alltaf jafn mikið að gera hjá manni, vinna, heimilisverkin, fótboltaæfingar, versla, redda hinu og þessu fyrir skólann. Sem betur fer eru nokkrir frídagar framundan í júní, fyrst uppstigningardagur 2.6. og frídagur í skólanum daginn eftir, svo kemur Hvítasunnan með 3ja daga helgi og 23.6. er líka frídagur, einhver kaþólskur frídagur held ég. Daginn eftir er því miður ekki frídagur í ár og gæslan lokuð. Þar á eftir kemur svo júlí en þá byrja sumarfríin, reyndar ekki fyrr en 25.júlí. Skólinn byrjar svo aftur 7.september. 18. júní á að gera skólalóðina skemmtilegri með málningu ofl. Spurning um að taka þátt í því, verð að skila miða fyrir föstudaginn ef ég ætla að vera með, þ.e. get verið með.
Sú gamla á Eurovision.
Ég efast um að ég hefði farið á Eurovision ef að prinsessurnar hefðu ekki komið. Þetta var frábær upplifun en lokakvöldið heima í stofu var líka yndislegt enda hafði ég magnaðan félagsskap. Gerði mér bara gott að fá skvísurnar í heimsókn til að spjalla, hlæja og grínast. Hlakka til að hitta þær í sumar. Ekki það að ég sé þessi týpa sem leiðist og er einmana en þetta var hressandi og skemmtilegt.
Þarna erum við skvísurnar :)
Hef svo sem ekkert meira að segja, það er búið að rigna í 2 daga núna og það var svalt að standa á vellinum í gær en framundan er svo bara blíða með 20° hita og sól. Indælt.
Love you
Sæl elskan, gaman að heyra frá þér og frábært að sjá þessar flottu myndir.
SvaraEyðaEr nú búin að frétta af miklu stuði hjá ykkur þessa Júróviku á nú samt eftir að fá betri skýrslu hjá prinsessunum við tækifæri. Þið haldið náttúrlega upprifjunarjúrópartý í sumar og leifið "gömlu" að vera með. Gott að þið nutuð þess að vera saman og þið öll að hafa þær í heimsókn. Kannast við tilfynninguna þegar allur skarinn er farinn og hversdagurinn tekur við svona er nú bara lífið (nú er eg væmin).
Hafðu það gott og njóttu sumarsins það er hætt við að koma hér, spáð snjókomu á fimmtudaginn. Bestu kveðjur, þín mamma.
jæja vina, gleymdir þú alveg að horfa á hinar sem eru með þér á myndinni í höllinni, hahaha, þetta er myndin þar sem ég klúðra veifunni big time framaní Kristey og við búnar að hlægja að þessu síðan...þú ert nú meiri kellingin;)
SvaraEyðaTakk annars fyrir frábæran Eurotíma, Þýskararnir hefðu samt mátt standa sig betur í eurogírnum, svona sérstaklega þegar gellur gera sér ferð á viðburðinn mikla!
Hlakka til að sjá þig í sumar:*
kv. R
Elsku Rakel, manstu ekki hvernig hin myndin var, þ.e. af ÞÉR ;) Ertu alveg viss um að þú viljir hana á netið?? Ég segi bara MEGA bros. Hahahaha.
SvaraEyðaKnús á þig bumba.
yndislegt að þið hafið skellt ykkur á júró, hlýtur að hafa verið skemmtileg upplifun - já tíminn æðir áfram á gervihnattaöld, og bráðum hittumst við á íslandinu besta...
SvaraEyða