Ég ætla að gefa mér 15 mínútur til að blogga, athuga hvort ég kem ekki einhverju gáfulegu frá mér. Nenni samt alls ekki að skrifa neitt, hef ekkert að segja, ekkert krassandi að gerast........ Ég er hins vegar komin með nóg af sjálfri mér núna, finnst ég vera gjörsamlega að springa úr fitu, uppþembd og ógeðsleg bara. Kannski eru þetta sýklalyfin sem ég fékk við blöðrubólgunni........alveg spurning. Þetta gæti jafnvel verið íslenska nammið sem ég lauma mér í í tíma og ótíma.........Nú eða bara hrein leti, enginn agi og þar fram eftir götunum. Núna segi ég STOPP,hingað og ekki lengra........nú skal vigtin fara aftur niður á við. Eftir þessa viku verð ég bara að taka mig á, annars líður mér bara illa. Ég vil komast aftur þangað sem ég var fyrir 2 árum, jafnvel neðar en ég ætla ekki að gera mér einhverjar grillur strax. Reyndar er ég á svipuðu róli og ég var þegar ég var 17 ára, svona um það leyti sem ég fór til USA. Margir vita nú hvernig ég kom þaðan........ég segi nú bara "Rolin´, rolin´" (mamma, rolin þýðir rúllandi). Mér finnst ég sérstaklega þrútin þegar það er hlýtt úti, í dag var 30° hiti og ég á fullu að drekka vatn, samkv. læknisráði. Ætti kannski að fá mér einhver vatnslosandi töflur? Bíddu nú við, hvenær byrjaði ég að blogga? Ég ætlaði að gefa mér 15 mínútur, þær hljóta að vera langt komnar.
Best að setja bara inn mynd......
Svona var þetta líka í dag, fór hæst í 31,5.
Ég ætla nú samt ekkert að kvarta yfir þessari blíðu, sei, sei, nei. Lagðist aðeins í sólbað í dag. Hef nú ekki gert það síðan í Tyrklandi í fyrrasumar en þar sem ég kemst nú ekki í sund (útaf blöðrubólgu, sem er reyndar búin) þá ákvað ég að tana mig smá hérna á svölunum. Það var var gott að fá smá yl í kroppinn og ég fékk frið. Julian var hjá vini og Henrik var ýmist í lego eða í tölvunni. Seydi var auðvitað að vinna, hvað annað.....
Núna er loksins allir sofnaðir hér,nema ég. Sunnudagur á morgun eftir laaaaaaaaaanga helgi. Svo er löng helgi aftur um næstu helgi en þó "bara" 3 dagar. Ég er að velta því fyrir mér að koma mér inn í rúm, taka vatnsflöskuna með og reyna að finna eitthvað til að horfa á í imbanum. Annars arfaslök dagskrá í kvöld, þessvegna sit ég hér og blogga og feisbúkkast.
Mig langar í nammi, ætla ekki að láta það eftir mér og drekk bara vatn. Nú er það bara harkan sex! Hversu lengi það svo endist.....
Góða nótt
Sæl elskan.
SvaraEyðaÞað er mikið að eitthvað heyrist frá þér hér. Engar fréttir eru jú góðar fréttir svo eg var bara salla róleg þó ekkert kæmi hér inn.
Baráttan við kílóin er nú skrítin það er of eða van þar eins og víða annarsstaðar.
Gangi þér vel í baráttunni.
Bastu kveðjur þín mamma.
Tja mamma, við heyrðumst nú í símanum fyrir skömmu svo að þú missir nú ekki af neinu :)
SvaraEyðaÉg þorði á vigtina í morgun......best að byrja á 3 kílóum, sjáum svo til.