Á morgun fer ég til húðlæknis en ég fór til heimilislæknisins í blettaskoðun 10.júní og hún vildi endilega að ég léti kíkja á 3 bletti, 2 á malla og einn undir tá. Ég er reyndar á því að það sé sár en það er best að láta kíkja á þetta. Fór loksins í handnudd, sem ég fékk í fertugsafmælisgjöf, á miðvikudaginn var. Minntist eitthvað þessar "freknur" sem ég væri með á höndunum en snyrtifræðingurinn meinti nú að þetta væru elliblettir! Ha, elliblettir...... almáttugur. Er nú ekki nóg að ég sé komin með grátt í vanga......þarf ég nú að fá ellibletti á hendurnar líka.? Nú jæja, sagði ég bara, þegar hún sagði mér að hafa nú ekki áhyggjur af þessum blettum. Sagði líka að ég væri þó allavega með minni hrukkur en sumir á mínum aldri...........
Ætli ég eigi einhverja mynd, örugglega ekki. Hef ekki verið virk með myndavélina undafarið, nema þá helst af strákunum og það fer á barnaland enda er þetta bloggið MITT en ekki strákanna. Ég var samt að pæla í því að þegar ég hætti með barnaland, get ég bara bloggað í staðinn, kostar ekkert og er auðvelt í notkun. Hef allavega ekki hugsað mér að hafa of mikið um strákana á facebook, það er líka MITT.
Set bara m.a. inn myndir af sýningunni sem við fórum á um Hvítasunnuna. Hef því miður ekkert annað upp á að bjóða........ Engar pönnsur núna.
Þetta er nú við "Sorpu" í Dorsten, smekklegt :)
Hann hefur þótt flottur þessi
Sumarið er eitthvað í pásu núna, örugglega í fríi í Tyrklandi bara. Engir sólríkir, heitir dagar núna, bara skýjað, annað slagið sól og um 20°. Var m.a.s. bara 13° "hiti" í fyrradag, það þótti mér dapurt. En svona er þetta bara, ekkert hægt að gera við því svo sem. Við höfum því ekkert farið í útisundlaugar þetta sumarið, þarf að vera ansi hlýtt til þess enda eru laugarnar upphitaðar með sól og hlýju en er samt ískaldar allt sumar, það finnst mér allavega. Vona bara innilega að ég fái ágætis veður á Íslandi.........annars #?&µ~# Ég er engin Pollýanna og finnst norðanátt með rigningu og 10° kulda ÓGEÐSLEGT veður, sama í hverju ég væri......... *hrollur*
Jæja, núðlurnar örugglega orðnar "al dente" og meira til..........bæjó í bili.
Iss Elliblettir,ég hunsa þetta nú bara:) þetta er bara misbrúnka og hana nú!!!!! ég hefði frekar nefnt þetta þroskabletti finst það mun smartara, en já ég er nú svolítil pollyanna en ég verð nu samt að viðurkenna að ég er orðin drulluþreytt á norðanáttini og okkar 4-7 gráðum max í 5 vikur,en vonum það besta elskan:):) en alltaf gaman að lesa bloggin þin og í guðana bænum ekki hætta því:) knús og kossar undan teppinu í sófanum en ekki á klóinu:)
SvaraEyðaÆi já mín kæra, auðvitað er þetta misbrúnka ;) Lítur líka út eins og freknur.........
SvaraEyðaÉg trúi því vel að þessi kuldi sé orðinn þreytandi,kominn 22.júní! Getur eiginlega bara orðið betra :D
Knús í morgunsárið
...best að aður kvitti annað slagið fyrir innliti gamla :-)
SvaraEyðaFlýttu þér samt hægt næst þegar þú kvittar "aður" ;)
SvaraEyða