Alveg ótrúlegt hvað tíminn líður hratt, mér fannst ég bara hafa bloggað í gær en var að sjá það að ég bloggaði síðast um Jónsmessu eða 21.júní! Leti er þetta........eða bara ekkert að segja, nú eða enginn tími. Ég gef mér allavega ekki tíma til að blogga eins og er. Nú er ekki nema rúmlega vika í Íslandsferð..........er þetta eðlilegt? Ég er að hugsa um að pakka niður flestu á sunnudaginn, nenni ekki að halda veislu fyrir fjölskylduna en Henrik verður víst 7 ára á laugardaginn og hann vill auðvitað halda veisluna í Kinderwelt með vinum sínum. Svo er hvort eð er fjölskylduveisla á mánudaginn þegar Jemain frændi hans verður 6 ára.......Nei, ég ætla að sleppa þessu í ár, nenni því bara ekki, í alvöru talað. Á eftir að komast í búðir áður en ég flýg, kaupa fyrir Unni systur, afmælisgjöf handa Hlyni ofl. gjafir. Gæti kannski komist á miðvikudaginn en þá er ég í fríi því að ég ætla að hjálpa við íþróttavikuna í skólanum. Verður fínt að gera eitthvað annað en að "hanga" á verkstæðinu.
Átti aldeilis indælan sunnudag en Seydi tók strákana með í fótboltann. Ég dreif mig út að hjóla, eitthvað út í buskann, upp götuna, til hægri í Marl, aftur til hægri og var allt í einu komin í Oer-Erkenschwick áður en ég kom aftur til Recklinghausen. Ljúft að láta sig renna heim, niður í móti. Tók eina mynd á leiðinni. OH, hún er ekki í fartölvunni minni, bara í stóru tölvunni........kemur seinna, hehe.
Ég ligg nefnilega uppi í rúmi, strákarnir sofa, Henrik greyið með risa roða eftir (mjög sennilega) geitungabit/stungu. Var að kanna hvað þetta gæti verið hérna á netinu og komst að þessari niðurstöðu. Litla greyið er víst frekar viðkvæmur fyrir stungum og bitum. Elsku kallinn minn. Er að pæla í því hvort að ég eigi að ná í Seydi........hann liggur á sófanum inni í stofu. Ekki beint þægilegt að sofa þar EN hann getur sjálfum sér um kennt, verður bara að drullast inn í rúm áður en hann sofnar eða......... Ætla að hugsa málið betur ;)
Best að fara að hvíla sig, þarf að vakna kl. 6:30 eins og alltaf. Spáð bongóblíðu á morgun, spurning um að drífa sig í sund???
Sæl elskan, það er mikið að þú gefir þér tíma til að láta heyra frá þér hér.(Bara grín).
SvaraEyðaJá tíminn er svo fljótur að líða að það er alveg hræðilegt og eg ekki búin að gera helminginn af því sem eg ætlaði að gera áður en þið kæmuð, en það verður bara að hafa það. Hef nú samt nokkra daga til stefnu.
Elsku Henrik minn að vera svona eftirsóttur af einhvarjum kvikindum, það var nú ekki glæsilegt eyrað um árið. Er ekki hægt að bera eitthvað á þetta??????
Meira vesenið á þessun köllum að sofna alltaf inni í stofu, kvarta svo og kveina í skrokknum hahaha.
Hafðu það gott í blíðunni. Það er líka blíða hér nú um stundir.
Kveðja mamma.
Ég bar nú Húðgaldur á þetta í gærkvöld, en hafði líka sett Fenistil (sem er við stungum). Ætla að hita þetta á eftir, það hjálpar kannski. H. fer að vakna og þá kíki ég á þetta.
SvaraEyðaBlíða í dag en svo rigning á morgun, sama jójó veðrið áfram..........
Sæl systir, takk fyrir bloggið. Þú mátt bæta við á innkaupalistann einum pakka af superpep, alveg snilld. Hlakka til að sjá ykkur, U.
SvaraEyðaP.S. ALDREI að ýta við karlinum í sófanum þegar hann er sofnaður þar á kvöldin...
OK, set peppið á listann :) Ég lét nú Seydi eiga sig EN hann er oft búinn að biðja mig um að ýta við sér og lóðsa hann inn í rúm ;)
SvaraEyða