sunnudagur, 17. júlí 2011

Heimferð nálgast....

...sem þýðir það að ég þarf að pakka niður! Ekki beint uppáhalds, jafnvel þó að ég sé alls ekki að gera það í 1.skipti. Alltaf koma upp sömu spurningarnar um hvað á taka með??? Bleika bolinn, uppáhaldsbolinn, fína bolinn, fínu skóna,strigaskó, fínu peysuna, flíspeysuna, lopavestið, náttbuxur, gallabuxur?????? Hvað á að taka með fyrir strákana er líka eilífðar spurning.......þykka peysu, þunna peysu, gallabuxur, fínni buxur, jakka, stígvél, skó (þoli ekki að ferðast með skó) osfrv. osfrv.????? Núna er taska strákanna orðinn full, rétt um 20 kg. Mín er orðin 16 kg. og ekki allt komið í hana........ætla að taka þriðju töskuna með, svona sem nátt-/fataskiptistösku. Ég verð alveg að stoppa mig af í þessu stressi, ég EKKI að fara að vera með yfirvigt sko enda má ég koma með 60 kg. plús handfarangur EEEEEEEEEN ég nenni ekki að hafa mikið í handfarangri OG það er höfuðverkur hvað á að koma með, hvaða föt passa við hvaða tilefni. Ég þarf að hafa eitthvað til að fara út á lífið, eitthvað til að fara í göngutúr, eitthvað til að fara í sund (á reyndar sundbol heima), já og svo skó við öll þessi tilefni! Allar konur í fjölskyldunni svo fótnettar að ég get ekki fengið neina skó lánaða hjá  þeim........heldur ekki hjá vinkonum. Djöfull er ég að stressa mig á þessu alltaf hreint, þoli það ekki og reyni að stemma stigu við því, tekst svona la la. Finnst ég alltaf vera að gleyma einhverju. En það verður bara að hafa það þá........mikilvægast er að koma með passana, myndavél (ekki gleyma hleðslutækinu samt), gemsann, peningaveskið (með kortum og peningum), sjúkrakassakortin og smá snyrtidót. Basta!

Engin mynd í dag, blíðuveður úti, 20° og skýjað, glittir í blátt annað slagið. Afmæli hjá frænda strákanna á morgun, hitta Ricarda á þriðjudaginn, fótboltaslútt á miðvikudaginn og svo er bara kominn fimmtudagur! Verð fegin þegar ég lendi.........nema að ég stressast alltaf smá við að fara í fríhöfnina. Reyndar ekki eins slæmt núna þegar strákarnir eru orðnir svona stórir en samt, alltaf smá stress í gangi í minni........Æi, skítt með það.

Góðan sunnudag

2 ummæli:

  1. sjáumst á mærunni :) Alva

    SvaraEyða
  2. Sæl elskan.
    Eg er komin heim úr Reykjavíkinni í kuldann hér, vona að okkur hafi tekist að taka með okkur smá sól.
    Alltaf sama stressið með farangurinn, mundu að hér eru bæði búðir og þvottavél og svo áttu skó hér heima. Eitthvað er nú til af fötum og skóm á strákana líka.
    Hlakka til að fá ykkur "heim".
    Kveðja mamma.

    SvaraEyða