...nenni nú samt ekki að blogga mikið alveg strax, svo margt sem sveimar um í huga mér en ég er ekki í rétta gírnum akkúrat núna. Langaði bara að breyta efsta blogginu, leiðinlegt að hafa "Heimferð nálgast" efst á lista svona þegar ég er komin hingað heim núna, allstaðar heima, hér og þar ;)
Þrumuveður úti núna, sit í eldhúsinu og horfi út, ætla að fara að huga að kvöldmat enda fínt að borða um sexleytið. Ætla nú bara að hafa fisk og kartöflur, að ósk Julians. Er búin að þvo 3 vélar, þrífa og laga til, taka upp úr öllum töskum ofl. Nú þarf ég að skottast upp með töskurnar, taka asskoti mikið pláss hérna inni. Þarf líka að losna við dýnuna hans Seydi en hann keypti sér nýja um daginn. Óþarfa dót svona til lengdar.....
Tók hring í bænum áðan, það var alltaf jafn indælt. Keypti ekkert merkilegt en vantaði sárlega klósettpappír og ég skutlaðist því í dm og keypti hann ásamt fleiri nauðsynjum. Kom aðeins við í Netto á leiðinni heim, en þá kom skýfall og við urðum smá blaut áður en við náðum inn, sluppum samt ágætlega. Verslaði smá og labbaði svo heim í sól!!
Seydi fór eitthvert að kaupa bíl, ekki eftir neinu að bíða með að vinna. Fótboltagrill hjá honum og gaurunum hans á morgun, þ.e. ef það rignir ekki of mikið........sjáum til.
Jæja, þetta er gott í bili, lengra blogg mun fylgja á næstu dögum. Ég lofa.
Inga
Sæl elskan.
SvaraEyðaVelkomin "heim" og takk fyrir sumarið. Alltaf gott heyra frá þér.
Hér er heldur tómlegt en það venst.
Hafðu það gott, saknaðarkveðjur mamma
Það er nú ég sem ætti að þakka fyrir sig, og okkur :) Trúi vel að það sé tómlegt en nú eru spennandi tímar framundan með nýju kríli í fjölskyldunni. Svo fer vinnan að byrja. Ég nenni hins vegar engan veginn í vinnuna á morgun!
SvaraEyðaTakk fyrir spjallið í morgun. Söknum ykkar líka.