Ég keypti mér samt hlýra-, stutt- og langermabol en eiginlega ætla ég að bíða með að kaupa mér mikið af fötum þangað til að tískursérfræðingurinn, hún Rakel Dögg, kemur í heimsókn. Ætla að fá hana með mér í búð(ir). Hún má kaupa sér eitthvað í leiðinni líka. Fæ svo Unni og Kristey til að dæma með henni, þær mega líka kaupa og skoða, ekki málið :)
Halterner Strasse
Þar sem vorið er komið, fer það að verða nauðsynlegt að fækka fötum nema þá að stikna. Þetta er allt í lagi ennþá, ekki það heitt að maður þurfi að sýna leggi og upphandleggi EN það styttist í það og þá verður maður sko að vera reddí með rakaða leggi og stífa bingóvöðva! Tala nú ekki um að fara í sund.....ÆI, fólk horfir þá bara, mér er stundum alveg sama en ekki alltaf........ ég reyni bara að vera sem mest ofan í lauginni eða liggjandi á handklæði, labba sem minnst um og þá helst með "pareo" utan um mig.
NEI, ég er ekki að fara í átak..........er alltof agalaus til þess og greinilega ekki alveg nógu óánægð til að byrja í átaki.