...sem þýðir það að ég þarf að pakka niður! Ekki beint uppáhalds, jafnvel þó að ég sé alls ekki að gera það í 1.skipti. Alltaf koma upp sömu spurningarnar um hvað á taka með??? Bleika bolinn, uppáhaldsbolinn, fína bolinn, fínu skóna,strigaskó, fínu peysuna, flíspeysuna, lopavestið, náttbuxur, gallabuxur?????? Hvað á að taka með fyrir strákana er líka eilífðar spurning.......þykka peysu, þunna peysu, gallabuxur, fínni buxur, jakka, stígvél, skó (þoli ekki að ferðast með skó) osfrv. osfrv.????? Núna er taska strákanna orðinn full, rétt um 20 kg. Mín er orðin 16 kg. og ekki allt komið í hana........ætla að taka þriðju töskuna með, svona sem nátt-/fataskiptistösku. Ég verð alveg að stoppa mig af í þessu stressi, ég EKKI að fara að vera með yfirvigt sko enda má ég koma með 60 kg. plús handfarangur EEEEEEEEEN ég nenni ekki að hafa mikið í handfarangri OG það er höfuðverkur hvað á að koma með, hvaða föt passa við hvaða tilefni. Ég þarf að hafa eitthvað til að fara út á lífið, eitthvað til að fara í göngutúr, eitthvað til að fara í sund (á reyndar sundbol heima), já og svo skó við öll þessi tilefni! Allar konur í fjölskyldunni svo fótnettar að ég get ekki fengið neina skó lánaða hjá þeim........heldur ekki hjá vinkonum. Djöfull er ég að stressa mig á þessu alltaf hreint, þoli það ekki og reyni að stemma stigu við því, tekst svona la la. Finnst ég alltaf vera að gleyma einhverju. En það verður bara að hafa það þá........mikilvægast er að koma með passana, myndavél (ekki gleyma hleðslutækinu samt), gemsann, peningaveskið (með kortum og peningum), sjúkrakassakortin og smá snyrtidót. Basta!
Engin mynd í dag, blíðuveður úti, 20° og skýjað, glittir í blátt annað slagið. Afmæli hjá frænda strákanna á morgun, hitta Ricarda á þriðjudaginn, fótboltaslútt á miðvikudaginn og svo er bara kominn fimmtudagur! Verð fegin þegar ég lendi.........nema að ég stressast alltaf smá við að fara í fríhöfnina. Reyndar ekki eins slæmt núna þegar strákarnir eru orðnir svona stórir en samt, alltaf smá stress í gangi í minni........Æi, skítt með það.
Góðan sunnudag
sunnudagur, 17. júlí 2011
mánudagur, 11. júlí 2011
Bara kominn júlí.........
Alveg ótrúlegt hvað tíminn líður hratt, mér fannst ég bara hafa bloggað í gær en var að sjá það að ég bloggaði síðast um Jónsmessu eða 21.júní! Leti er þetta........eða bara ekkert að segja, nú eða enginn tími. Ég gef mér allavega ekki tíma til að blogga eins og er. Nú er ekki nema rúmlega vika í Íslandsferð..........er þetta eðlilegt? Ég er að hugsa um að pakka niður flestu á sunnudaginn, nenni ekki að halda veislu fyrir fjölskylduna en Henrik verður víst 7 ára á laugardaginn og hann vill auðvitað halda veisluna í Kinderwelt með vinum sínum. Svo er hvort eð er fjölskylduveisla á mánudaginn þegar Jemain frændi hans verður 6 ára.......Nei, ég ætla að sleppa þessu í ár, nenni því bara ekki, í alvöru talað. Á eftir að komast í búðir áður en ég flýg, kaupa fyrir Unni systur, afmælisgjöf handa Hlyni ofl. gjafir. Gæti kannski komist á miðvikudaginn en þá er ég í fríi því að ég ætla að hjálpa við íþróttavikuna í skólanum. Verður fínt að gera eitthvað annað en að "hanga" á verkstæðinu.
Átti aldeilis indælan sunnudag en Seydi tók strákana með í fótboltann. Ég dreif mig út að hjóla, eitthvað út í buskann, upp götuna, til hægri í Marl, aftur til hægri og var allt í einu komin í Oer-Erkenschwick áður en ég kom aftur til Recklinghausen. Ljúft að láta sig renna heim, niður í móti. Tók eina mynd á leiðinni. OH, hún er ekki í fartölvunni minni, bara í stóru tölvunni........kemur seinna, hehe.
Ég ligg nefnilega uppi í rúmi, strákarnir sofa, Henrik greyið með risa roða eftir (mjög sennilega) geitungabit/stungu. Var að kanna hvað þetta gæti verið hérna á netinu og komst að þessari niðurstöðu. Litla greyið er víst frekar viðkvæmur fyrir stungum og bitum. Elsku kallinn minn. Er að pæla í því hvort að ég eigi að ná í Seydi........hann liggur á sófanum inni í stofu. Ekki beint þægilegt að sofa þar EN hann getur sjálfum sér um kennt, verður bara að drullast inn í rúm áður en hann sofnar eða......... Ætla að hugsa málið betur ;)
Best að fara að hvíla sig, þarf að vakna kl. 6:30 eins og alltaf. Spáð bongóblíðu á morgun, spurning um að drífa sig í sund???

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)