laugardagur, 28. febrúar 2009

Febrúarlok

Þetta verður ekki langt í dag. Maginn er ekki alveg að gera sig. Ég sem hélt að þetta væri að lagast en í gær fékk ég aftur krampa, var slöpp og hreinsunin heldur áfram..... Er skárri í dag, get samt ekki borðað mikið og þá bara litla bita í einu. Kannski er líkaminn bara að segja mér að drullast til að borða hollt og lítið í einu?!

Veðrið er grátt en það á víst að birta til í dag og fara í 12°, á morgun enn hlýrra. Kannski verð ég nógu hress til að fara út að hjóla. Þarf bara að setja pedalana á nýja hjólið og herða allar skrúfur. Set Seydi í það verkefni.

Í gær morgun fór ég í handnuddið sem Bärbel gaf mér í afmælisgjöf. Ég lá þar á bekk með teppi yfir mér, rólega músík og góða lykt. Konan nuddaði á mér hendur og setti svo maska sem ég beið með í 20 mín. Náði að slaka aðeins á. Hitti svo Bärbel og við kíktum aðeins í bæinn en ég fór þá að finna aftur til í maganum. Þegar ég kom heim lá ég bara á sófanum þangað til ég þurfti að ná í strákana. Lá svo aftur inni í rúmi og strákarnir voru hér bara sjálfala. Það gekk vel og það var ekkert voðalega mikið útum allt......Skiptir ekki máli.

Er að hugsa um að fara inn í rúm núna og horfa á skíði. Búin að borða, taka Paratabs og magatöflu.

Góða helgi

mánudagur, 23. febrúar 2009

Bolla, bolla.

Bolludaginn runninn, hvað ætli margir bossar hafi verið "bollaðir" í morgun? Ég man hve gaman það var að búa til bolluvönd í skólanum, þar var mikið vandað til.

Hér er þessi siður öðruvísi. 11.nóvember byrjaði "Karneval" eða 5.árstíðin. Hápunkturinn er svo þessi vika frá síðasta fimmtudegi fram á miðvikudag. Sumir eru fullir allan tímann, þ.e. þess viku.........Fullorðið fólk fer á "Karnevalssitzung" eða nokkurs konar samkundu þar sem fólk er í búningum, mikið drukkið og sagðir furðulegir brandarar í rími. Annars er ég ekki alveg inn í þessu, hef aldrei farið á svona og hef lítinn áhuga.

Fór með strákana í skrúðgönguna sem er alltaf á bolludag eða "Rosenmontag". Vagnar keyra hring í bænum, lúðrasveitir og félög labba með. Nammi er hent af vögnunum og komu strákarnir með þokkalega mikið af ódýru nammi og poppi heim. Við erum hundblaut en það rigndi næstum því allan tímann. Ég ákvað að skella á mig nornahattinum hans Julian, setti á mig skikkju og málaði 3 svarta punkta í andlitið, svartar varir og tennur :) *Abrakadabra* Julian var ekki í búning og Henrik var með brunaliðshattinn sinn.

Ég bakaði vatnsdeigsbollur í gær. Þær tókust svona la la. Ég hrærði ekki nóg áður en eggin komu í deigið. Verð greinilega að baka þær oftast svo þær takist nú á bolludaginn......Það má samt alveg borða þær ;) Átti m.a.s. rabarbarasultu síðan 17 hundruð og súrkál.

Hef ekkert meira að segja. Man ekki eftir neinu spennandi í augnablikinu. Er hálf slöpp, búin að vera með loft í maganum síðan á laugardagskvöldið og einhvern veginn virðist líkaminn vera í alhreinsun. Það þarf enga Jónínu fyrir mig...........samt ekkert langt til Póllands fyrir mig!

Bolla, bolla.

fimmtudagur, 19. febrúar 2009

Ég fékk afmælispakka frá Hjálmari í gær. Í pakkanum voru diskarnir "Hér er draumurinn" með Sálinni og súkkulaðisápa frá Guggu........frábært. Setti 1. diskinn aðeins í tækið í gær og fékk algert "flashback". Skemmtilegir tímar þegar ég var að skottast á sveitaböllunum með vinkonunum. Sama hvort ég var bílstjóri eða ekki, það var alltaf gaman. Sveitaböll eru víst varla til í dag. Það finnst mér fúlt. Ekki að ég myndi endilega fara heldur bara fyrir unga fólkið í dag. Ég er ansi hrædd um að ég yrði alger "amma" ef ég færi á sveitaball í dag. Eða bara út yfir höfuð, allavega á Íslandi.

Hérna hef ég þó tækifæri til að fara á "Ü 30" partý eða "Yfir 30" partý. Hef reyndar bara farið einu sinni, um áramótin þegar Hjálmar heimsótti mig. Af hverju er ekki haft svona kvöld annað slagið á Gamla Bauk??? Okkur langar alveg eins til að dansa og dilla okkur eins og unga fólkinu. Fyrir enn eldri eru svo "Ü 50" dansiböll og "Tanztee" fyrir eldri borgara.

Ég hef sko ekkert á móti því að skemmta mér með yngra fólki EN það væri líka gaman að hafa ball bara fyrir mína kynslóð. Finnst ykkur það ekki? Hérna er þetta algert "hit" enda er þetta fólkið með peningana.......eyðir miklu meira en yngri kynslóðin (í drykki). Oftast mæta um og yfir 3000 manns í þessi partý hér í RE. Í Essen er þetta víst enn stærra batterí.

Jæja, hvað um það. Lítið að gera í vinnunni. Yfirmaðurinn bara ekki mættur enn og klukkan orðinn meira en 11. Ég sópaði verkstæðið áðan til að halda á mér hita. Hitastigið er um frostmark úti. Ekkert vor hér og ekki sýnist mér vorið hafa staldrað lengi við á Fróni.

Ég er búin að fá hjólið mitt. Við drifum okkur í metro í fyrrakvöld. Tókum strákana bara með þó að klukkan væri að verða átta. Mér er sko skít sama hvað fólk hefur haldið en börn hér eru vanalega farin að sofa um þetta leyti ;) Þar sem "Karneval" byrjar í dag eru búðir fullar af alls konar búningum og dóti. Við keyptum slökkviliðshatt handa Henrik og Seydi vildi endilega kaupa byssur handa strákunum. Þeir voru alveg sjúkir og keyptar voru 2 byssur og skot....Ég var ekki alveg á því að leyfa þetta en mér fannst svo gaman að sjá hvað Seydi var pabbalegur að skoða byssur og skot, prófa og gantast með strákunum :) OK, þeir fengu leyfi. Margir vinir mínir "í den" áttu byssur og ég sjálf keypti stundum skot til að "sprengja". Ekki veit ég til þess að einhver af þessum vinum mínum hafi skotið manneskju.........hvað þá ég sjálf :D Mér finnst líka bara fyndið að skotin hafa ekkert breyst......ræmurnar góðu eru alveg eins og fyrir 30 árum! Annað "flashback".

Ok, þetta er nóg. Ætlaði sko ekki að skrifa svona mikið en ég bara get ekki hætt þegar ég byrja. Nenni varla að fara yfir þetta til að ath. villur.

Knús. Stórt knús á Hrefnu Ósk sem er 1. árs í dag.

mánudagur, 16. febrúar 2009

Blogg númer 100!

Stórafmæli í dag! Hundraðasta bloggið mitt hérna á blogspot. Og ég er ekkert að fara að hætta að blogga, sama hvort að einhver les þessa þvælu eða ekki......

Svona í áframhaldi af afmælinu mínu ætla ég að segja hvernig dagurinn var. Eftir morgunmatinn fór Seydi á verkstæðið og ég ætlaði svo að keyra þangað seinna. Við færum svo saman til Essen. Ég byrjaði samt á því að koma við hjá Bärbel vinkonu og þar mátti ég loka augunum til að sjá ekki óvæntu uppákomuna sem beið mín. Þegar ég kom inn í stofu var spilað afmælislag, búið að raða pökkum á borðið, kveikja á kerti og skreyta stól með blómum........þetta gerði hann Florian fyrir mig. Hann er alger dúlla og ég er ein af hinum útvöldu sem hann talar og líkar við. Það er sko ekkert sjálfgefið. Hann hafði m.a.s. keypt handa mér gjöf, lítið "bangsablóm" eða blóm úr bangsaefni. Frá mömmu hans fékk ég handáburð, bók um "súpermömmur" (sem allt kunna og geta, og gera allt til að aðrar mömmur fái samviskubit) og gjafakort í handnudd.........ekkert smá flott hjá þeim mæðginum. Hvað ætli bíði mín á næsta ári? :)

Við mæðgin brunuðum svo á verkstæðið, kláruðum nokkra reikninga þar og keyrðum svo til Essen. Mig hafði langað til að sjá nýja "mollið", Lembecker Platz, í langan tíma. Þó það væri laugardagur ákváðum við að hella okkur í brjáluðu kaupæðismenninguna.

Við vorum nú aðallega að skoða, keyptum okkur reyktar pylsur, komum við í bakaríi og drukkum kaffi. Strákarnir fengu kleinuhringi og Capri Sonne. Löbbuðum svo í gegnum mollið og inní bæ. Mikið um að vera, fullt af fólki, engin kreppa hér, sýnileg allavega.

Í miðum bænum var skautasvell en það var of fullt af mínu leyti, mig langar að skauta hratt þegar ég skauta svo að við létum það duga að leyfa Julian að fara eina ferð á slöngu. Löbbuðum aðeins um áður en við héldum til baka í gegnum mollið og í bílinn.

Brunuðum til Duisburg til "litlu Istanbul". Þar eru milljón tyrkneskir veitingastaðir, milljón tyrkneskar búðir með brúðarföt, milljón tyrkneskar matvörubúðir osfrv. Fórum á staðinn "okkar" og ég fékk mér lamb á teini með hrísgrjónum, svakalega gott. Vantaði bara sósuna en Tyrkir eru ekki miklir sósumenn, allavega ekki heitar sósur.

Þetta var indæll dagur. Ég á bara eftir að fá hjólið mitt. Kannski við náum í það í kvöld.

Gleymdi alveg að segja að Seydi færði mér RISA stóra rós + grænt með,þegar hann kom frá því að kaupa rúnstykki. Vonandi var ekki smurt of miklu ofan á verðið svona á Valentínusardegi...... þeir eiga það til, blómasalarnir blessaðir.

Jæja, ætla að búa til pizzudeig, strákarnir eru að fara að spila Ólsen Ólsen. Ég veit nú ekki alveg hvernig það mun ganga en við sjáum til.

Knús

laugardagur, 14. febrúar 2009

14.febrúar

Fyrir 39 árum var ég alveg að koma í heiminn, mér skilst að ég hafi fæðst rúmlega 8 og akkúrat núna er klukkan 7:50 á Íslandi. Hérna er hún að verða níu og ég var að skríða á fætur, alltaf gott að sofa lengur. Kallarnir sofa nú ennþá þrátt fyrir að sólin skíni úti. Það liggur smá föl yfir grasi, ég man ekki eftir því að það hafi verið svona kalt hér á afmælinu mínu. Held bara ekki enda kominn miður febrúar og vorið skammt undan.

Núna heyrist eitthvað innan úr herbergi, Julian sýgur upp í nefið. Einhver skítur sem vill ekki fara og heldur ekki verða almennilegt kvef. Dagurinn byrjaði nú gáfulega........ég dottaði í gærkvöld en vaknaði við væl í Henrik. Hann var að pissa, náttbuxnalaus og ég fylgi honum inní herbergi. Það fyrst sem ég sé er GUBBA í rúminu hans........æ æ litli vinurinn. Hann byrjar aftur að kúgast og nær að fara fram á bað og hitta því sem eftir var í klósettið. Æi elsku kallinn. Ég sendi hann inní rúm til pabba síns og fer að þrífa æluna sem var líka á gólfinu og ég hafði stigið í......... Þegar þetta var allt búið, fer ég inní rúm, lít á klukkuna og............hún sýnir 0:00.

Til hamingju með afmælið ÉG!

þriðjudagur, 10. febrúar 2009

Þá er frumburðurinn orðinn 7 ára! Ekki bara mér finnst tíminn líða hratt, Julian sjálfur sagði að hann hefði sko ekki verið lengi 6 ára....... Ég er eiginlega fegin að afmælisveislan er búin. Ég er einhvern veginn ekki þessi "afmælisveislutýpa". Alltaf eitthvað stress sem fylgir mér í kringum afmæli Julian. Allt annað þegar Henrik á afmæli, oftast allavega, þar sem við erum oft á Íslandi þann dag. Þar þarf ég ekki að pæla í því hverjum ég býð, hvenær og hvert.... þar er fólk sem bakar og græjar rétti fyrir mig. Í ár var vandamálið, hvar á að halda veisluna? hverjum á að bjóða? er hægt að bjóða frændunum saman (mömmurnar talast varla við)? á að bjóða öllum frændum og frænkum? osfrv. Besta lausnin var að leyfa Julian að bjóða þeim vinum sem hann vildi og 3 frændum á innileikvöll. Mömmurnar þurfa þá ekkert að sitja saman. Alltaf sama vesenið í fjölskyldu Seydi......hann og Ibo bróðir hans hafa ekki talast við í nokkur ár! Allavega 2 og hálft. Bilað.

Ég verð að segja að afmælið fór MJÖG vel fram. Engin rifrildi, engin slagsmál. Enda var Benedikt ekki boðið. Honum finnst ægilega gaman að slást......og pabba hans finnst það rosa kúl að hann hafi slegist við strák í 3ja bekk. Eins kúl og það nú er :/

Fór á fund hjá 1. bekk í gær. Fyrst voru allir foreldrarnir saman á sal. Það tók heila eilífð og ég sofnaði næstum því, zzzzzzzzz. Var verið að skýra aðeins út hvernig enskukennslan færi fram og hvers væri ætlast af börnunum í skólanum. Svona yfir höfuð reglur og hegðun. Eftir þessa löngu stund fórum við aðeins yfir í "okkar" stofu og kennarinn sagði okkur stöðuna hjá bekknum, hvað kæmi osfrv. Foreldrarnir ætla að hittast í mars svona til að kynnast. Þetta er ekki eins og á Húsavík þar sem "allir þekkja alla" dæmi. Ég ætla að reyna að fara, bara að láta Seydi vita nógu snemma og hringja svo í hann annað slagið þann daginn!

Oh, ég á eftir að ganga frá eftir kvöldbrauðið (Abendbrot). Bara brauð og álegg í dag. Strákarnir borðuðu pyslubrauð með engum pylsum, bara sósum og lauk.

Kuldaboli er kominn aftur hingað. 9° hiti um hádegi, 2° núna um kvöldmat. Fyrst var úði, svo rigning og núna er hríð. Ekki langt héðan (í Duisburg) brotnuðu tré í vindhviðum, sá það í fréttum.

Knús og kveðjur.

föstudagur, 6. febrúar 2009

Ég bara verð að koma þessu frá mér......

Fann áðan að mér var bumbult, fannst húðin vella eitthvað meira en vanalega, já mér fannst ég bara FEIT! Fór á vigtina-geri það nú vanalega ekki á kvöldin-en ég bara varð.......leist ekkert á töluna sem var þarna.....fór úr því sem ég var í........leist heldur ekki á töluna. Ansans hvað það munar um þessi 3 kg sem ég var léttari þegar ég flaug til Íslands um jólin. Ég finn mikinn mun á bara 1 kílói. Nú verð ég minnka nartið. Ég borða súkkulaði á hverjum einasta degi (svo ég muni). Var að enda við að borða 5 "mon cheri" bita. Nú drekk ég bara vatn það sem eftir er kvöldins. Æi já, var víst að borða 2 kúlur af ís sem Seydi kom með frá ísstaðnum góða.

Ég VEIT að ég þarf að komast í einhverja rækt, þó ekki væri nema labba meira. Ég er að hugsa um að hætta fyrr í vinnunni annað slagið og labba aðeins áður en ég sæki gaurana. Hjólaði nú töluvert í dag. Veðrið bauð upp á útiveru, 10° hiti og sól annað slagið. Því miður er spáð kólnandi aftur. Ég var alveg að venjast þessu vorveðri.

OK, þá er ég búin að koma þessu frá mér. Varð að koma þessu "á blað".
Ætla að horfa á mynd í TV og drekka vínberjasafa, nei ekkert vín, bara vínberjasafa með kolsýru.

Góða helgi

miðvikudagur, 4. febrúar 2009

Fyrst að ég sit hérna EIN í stofunni er tilvalið að rita nokkur orð. Seydi er enn að vinna og strákarnir ákváðu að fara að sofa á skikkanlegum tíma. Henrik m.a.s. fór rúmlega átta inn í rúm og tilkynnti það að hann væri að fara að sofa zzzzzzzzz

Er að hugsa um að skutla mér á sófann á eftir, jafnvel inn í rúm. Er búin að fá mér te og súkkulaði (Rakel, ég stal einni skeið af tyrkn. eplateinu). Ég viðurkenni að ég er með smá strengi í rasskinnunum eftir "fjallaferðina" í gær (sjá myndir á barnalandi).

Var að skoða myndir frá þorrablótinu í Aðaldal áðan. Mörg kunnuleg andlit og ægilega, frábærlega falleg mynd af Unni systur :):):) Ég fékk næstum því tár í augun af stolti að eiga svona fallega systur. Oh, ég á svo fallegar systur.......

Hef þessi orð ekki fleiri að sinni. Er farin að sjá tvöfalt af þreytu :O (þetta á að vera geyspi mamma)

Gute Nacht


mánudagur, 2. febrúar 2009

Ekki vann ég í lottó :( Einhverjir 2 unnu þessar 35 millur, sem sagt 17,5 millur á mann. Það gera í dag um 2.625.000.000.....eru þetta ekki um 2,5 milljarðar!!!! Ég held að þetta fólk þurfi ekki mikið að vinna það sem eftir er af lífinu. Ég meina þá þurfi, sumir vilja örugglega lifa sem eðlilegast þrátt fyrir þennan ríkidóm. Ætli ríkið komi ekki líka og taki eitthvað af þessu í skatt. Oh jæja, verði þeim að góðu.

Ilmandi skítafýla úti núna. Bændur hafa verið að bera á og vindáttin héðan af ökrunum er mjög óhagstæð fyrir mig. Er að lofta út og ilmurinn berst inn.....hef reyndar ekkert á móti smá skítafýlu en hún þarf ekkert endilega að vera inni hjá mér.

Julian var 1. daginn sinn í gæslu í dag. Ég ákvað að ná í hann fyrstu 2 vikurnar kl.14, svona meðan að hann er að venjast. Annars verður hann til 15 til að geta tekið þátt í íþróttum og til 16 á þriðjudögum en þá er "Kunst AG" eða myndmennt. Honum líkar vel, búinn að borða og læra heima, allt í góðum málum.

Henrik var með mér í vinnunni í dag, leikskólinn lokaður vegna starfsmannafundar. Seydi bauð okkur á McDonalds áður en við fórum heim. Ég fékk mér hammara með kartöflu"rösti" og beikoni, eitthvað svona vetrartilboð. Núna er ég södd.......ég sem ætlaði að vera með fisk í matinn í kvöld. Geri hann frekar á morgun.

Til hamingju með ríkisstjórnina þið þarna á Íslandi. Hvernig líst fólki á? Ekki spyrja mig um álit, hef lítið vit á þessu fólki og þeirra stefnum. Svo er bara að kjósa rétt í vor er það ekki? :)

Ein spurning til mæðra í lokin: Hefur ykkur stundum langað til að hætta í móðurhlutverkinu? Bara vera þið, KONUR? Mér leið þannig í gær, bara í smá stund samt. Er ég eitthvað skrýtin? Verð ég ekki bara að gefa mér meiri tíma fyrir MIG? Ég held að það sé allavega hluti af lausninni. (Ástæðan var sú að strákarnir hafa verið leiðinlegir að fara að sofa á kvöldin, eilíft spjall og brölt)

Góða viku, gott fólk.