Veit ekki hvort ég hef nokkra mynd í dag. Hef ekkert verið að mynda nema þá strákana og þeir eiga sínar síður fyrir sínar myndir. Hey, ég veit. Set inn gamla mynd af Seydi sem ég skannaði. Er komin með skanna hérna heim og var að prófa hann. Versogú, svona leit Seydi út fyrir tæplega 20 árum.
Hann veit ekkert að að set þessa mynd inn. Skoðar aldrei bloggið mitt enda skilur hann ekkert í því. Ætli ég sýni honum þetta ekki samt, við felum ekkert fyrir hvort öðru.
Annars er ég eitthvað svo stressuð, eiginlega útaf engu, samt getur það ekki verið útaf engu........finnst ég ekki gleyma einhverju hér og þar og allstaðar. Hrædd um að gleyma veskinu mínu, týna peningaveskinu, koma of seint að sækja strákana, gleyma talkennslunni, sofa yfir mig, hafa ekki nógu hreint og fínt, hugsa um hvað á að vera í matinn osfrv. osfrv. Hvernig fara konur, sem eru í fullri vinnu og kannski með enn fleiri börn, að þessu! Kannski spilar það inn í að ég hef engan sem hleypur upp á fyrir mig, nema þá helst Bärbel vinkonu. Seydi hefur meira en nóg að gera í vinnunni, ég líka, nóg er nú stressið þar stundum. Ég náði smá tíma til að slaka á, á síðasta sunnudag. Sendi Seydi með strákana til tengdó, nennti ekki með. Ekki oft sem ég er alein, nema þegar ég keyri í og úr vinnunni. Það er bara ekkert nóg. Nú koma örugglega komment um að Seydi geti bara hætt fyrr að vinna osfrv. Auðvitað getur hann það stundum, hann veit það alveg sjálfur og gerir sitt besta. Það er bara alveg ótrúlegt hvað hann er "vinsæll", ég veit ekki hvað það hringja margir í hann á dag eða koma á verkstæðið...... Það fyrsta sem ég ætla að gera, er að reyna að færa svefntíma strákanna fram. Láta þá fara að í ró hálftíma fyrr, svo kannski aftur hálftíma. Verst að þeir eru eins og ég, þurfa minni svefn en meðal börn.
Ég finn það bara að ég verð að fá lengur frið á kvöldin. Hef notið þess ef strákarnir hafa sofnað fyrr.
Væl og skæl er þetta........var það þetta sem þú baðst um Hjálmar :) Kvittaðu nú......
