þriðjudagur, 17. maí 2011

Time flies

Já tíminn æðir áfram, endalaust. Ég hef ekki bloggað í 2 vikur, Júróprinsessur eru komnar og farnar, hversdagsleikinn tekinn við aftur. Allavega um tíma, eftir rúmlega 2 mánuði verð ég komin til Íslands......og farin aftur heim. Ætli jólin séu ekki bara á næsta leyti???

Prinsessurnar fóru beint í ísinn þegar þær komu

Það er alltaf jafn mikið að gera hjá manni, vinna, heimilisverkin, fótboltaæfingar, versla, redda hinu og þessu fyrir skólann. Sem betur fer eru nokkrir frídagar framundan í júní,  fyrst uppstigningardagur 2.6. og frídagur í skólanum daginn eftir, svo kemur Hvítasunnan með 3ja daga helgi og 23.6. er líka frídagur, einhver kaþólskur frídagur held ég. Daginn eftir er því miður ekki frídagur í ár og gæslan lokuð.  Þar á eftir kemur svo júlí en þá byrja sumarfríin, reyndar ekki fyrr en 25.júlí. Skólinn byrjar svo aftur 7.september. 18. júní á að gera skólalóðina skemmtilegri með málningu ofl. Spurning um að taka þátt í því, verð að skila miða fyrir föstudaginn ef ég ætla að vera með, þ.e. get verið með. 

Sú gamla á Eurovision.

Ég efast um að ég hefði farið á Eurovision ef að prinsessurnar hefðu ekki komið. Þetta var frábær upplifun en lokakvöldið heima í stofu var líka yndislegt enda hafði ég magnaðan félagsskap. Gerði mér bara gott að fá skvísurnar í heimsókn til að spjalla, hlæja og grínast. Hlakka til að hitta þær í sumar. Ekki  það að ég sé þessi týpa sem leiðist og er einmana en þetta var hressandi og skemmtilegt.

Þarna erum við skvísurnar :)

Hef svo sem ekkert meira að segja, það er búið að rigna í 2 daga núna og það var svalt að standa á vellinum í gær en framundan er svo bara blíða með 20° hita og sól. Indælt. 

Love you

þriðjudagur, 3. maí 2011

LOKSINS

Loksins er ég búin að panta miða heim til Íslands í sumar! Er búin að vera með hnút í maganum útaf þessu leeeengi.......fyrst var að ákveða hvað ég ætti að vera lengi, svo var að ákveða hvort ég flygi frá Dusseldorf eða Köln, nú eða með Icelandair (sem útilokaðist snemma vegna ofurverðs og fjarlægðar frá flugvöllum) eða Express (sem útilokaðist líka vegna þess á hvaða dögum þeir fljúga, já og fjarlægðar til Hahn). Það er alltaf smá magaverkur að panta miðana heim. Ég vissi reyndar alveg upp á hár hvaða dag ég YRÐI að fljúga, kemur bara 21.júlí til greina þar sem skólafríin byrja daginn eftir þetta árið. Ég bara VERÐ að komast á Mærudaga, þó að ég muni missa af opnunarhátíðinni.  Næst þurfti að ákveða hvað ég yrði lengi........Julian fannst nú mánuður of stutt! Ég ákvað því að vera í mánuð + 5 daga eða til 26.ágúst. Nú er næsti magaverkur að komast heim til Húsavíkur þarna á föstudeginum.......ætli það sé ekki allt uppselt í flug, já og svo verð ég að gista einhvers staðar á fimmtudagskvöldinu! Eilífðar magaverkur er þetta..........Ég get engan veginn ætlast til þess að einhver sæki mig á miðjum Mærudögum, eða þannig. En það kemur seinna í ljós hvernig ég kem, en ég kem allavega. Verið bara viðbúin gott fólk. Ekki búast samt við því að ég heimsæki ALLA, ef einhver vill sjá mig verð ég á Garðarsbraut 53, jafnvel úti á palli í góðu veðri. Ætli ég verði ekki eitthvað á labbinu, í sundi eða á djamminu, held það nú..........

Er ekki kominn tími á mynd. Extra handa henni Unni minni sem er nú að koma til mín á sunnudaginn ásamt fríðu föruneyti, þeim Rakel litlu sys og Kristey frábæru. Mikið hlakka ég til, við hlökkum ÖLL til.

Adidas lagersalan í Herzogenaurach

Við komum aðeins við hjá adidas og Puma á leiðinni heim frá Ungverjalandi. Ætla nú ekkert að fara að tíunda þá ferð of mikið, skrifaði aðeins hjá strákunum og svo var mamma ofurkvittari á staðnum svo að hún veit svona nokkurn veginn hvernig ferðin var og svona. Flestir vita líka að viftureimin fór í bílnum, fór alveg í tætlur en sem betur fer ekki á ferð heldur bara akkúrat þegar við ætluðum út af bílastæðinu á hótelinu. Heppin þar. Til að gera langa sögu stutta fengum við ekki reim fyrr en á þriðjudegi eftir páska, seinni partinn........Seydi setti hana sjálfur á og bölvaði sjálfum sér að hafa ekki tekið reim með, hafði tekið hana úr bílnum áður en við lögðum af stað, alveg satt! Við vorum því eina nótt í viðbót á Club Tihany og gistum svo í Regensburg á leiðinni heim. Ekki hægt að keyra heim alla nóttina, hefðum ALDREI getað það. Sem varð svo til þess að við höfðum tíma til að fara á lagersölurnar, gaman af því. Ég keypti mér eina skó........aðrir keyptu sér MÖRG pör. Sjá mynd......
Seydi á flesta af þessum......

Strákarnir fengu Bayern Munchen bol og stuttbuxur, einhver pör af skóm og bakpoka. Eyddum meira þarna heldur en í öllu fríinu........

Þetta er allt saman ágætt. Veðrið er fínt, aðeins svalt í gær og í dag, sennilega á morgun líka en svo bara hækkandi hitastig og sól. Er reyndar ekkert sniðugt fyrir bændur eða kafteina á Rínarskipunum, þurrkar og lækkandi árborð eru ekki góð merki fyrir góða uppskeru eða flutninga. Veðrið er samt bara eins og það er, ekkert hægt að breyta því. Ég vona bara að ég fái gott veður á Fróni, pant ekki fá rigningu og innan við 10°, DANKE.

Verð nú að setja eina mynd frá Ungverjalandi. Tihany þorp

Þetta er orðið gott.........loksins þegar ég blogga skrifa ég heila ritgerð, eins og mér finnst/fannst ÖMURLEGT að skrifa ritgerð, oj bara. 

Segi bara, eigið góða viku og við sjáumst svo bara :)