laugardagur, 16. október 2010

Bleyta

Engin haustblíða lengur, heldur er komin rigning og hitastigið ekkert til að hrópa húrra yfir, rétt skríður yfir 10° þessa dagana. Suma morgna í síðustu viku var svo kalt að það var frost við jörðu og sumstaðar þurfti að skafa rúður! Þegar það er svona bjart yfir er frostið fljótt að koma. Mætti halda að ég hefði ekki um neitt að skrifa nema veðrið......gerir maður það ekki þegar ekkert er að frétta? Er kannski eitthvað að frétta? Alveg spurning.

 Ég er allavega búin að losa mig við þessi aukakíló sem ég bætti á mig þegar ég kom frá Tyrklandi. Ekki að ég hafi samt verið dugleg að labba úti, nei, því er af og frá. Ég byrjaði rosa dugleg en svo fékk ég helvítis kvefið og þegar það var farið var orðið svo dimmt úti klukkan 6 á morgnana, að ég hætti mér ekki út. Ætla mér frekar að hætta fyrr í vinnunni og hreyfa mig áður en ég næ í strákana. Geri það þegar skólinn byrjar aftur en núna er haustfrí. Var nú svo vond mamma að ég sendi gaurana í gæslu þar sem ég er í vinnu. Julian er nú ekki beint hrifinn af því að þurfa báðar vikurnar í gæsluna, þetta sé sko ekkert frí, segir hann. Við ræðum kannski við "bossinn" um að fá frí einhverja daga í næstu viku ;)

Best að koma með eina mynd eða svo.......
 Séð frá göngubrú rétt hjá slökkvistöðinni

Mikið var gott að vera í fríi í mánudaginn en ég þurfti til kvennsa kl.10 og ákvað að vera bara í fríi. Ég vafraði svo um bæinn eftir læknisheimsóknina en fann bara ekkert sem mig langaði í.......fattaði ekki fyrr en eftir á að auðvitað hefði ég átt að nota tímann til að kaupa jólagjafir. Alveg asni get ég verið, alltaf með jólagjafirnar á síðustu stundu. Ég hlýt að finna mér tíma til að kaupa eitthvað fallegt handa vinum og vandamönnum, ef ekki panta ég bara gjafir á netinu og læt færa mér heim. Allt hægt að fá á netinu, næstum því allavega. Ætli ég muni eftir að kaupa litlar og léttar jólagjafir í ár???? Efast um það, í fyrra sendi ég tæplega 8 kg. pakka til Íslands! Sem er náttúrulega alger bilun en ég er aldrei vitur eftir á þegar kemur að jólagjöfum, úbbs.

Laugardagur í dag, Seydi farinn að kaupa bíla, strákarnir leika sér, ég búin að baka "cup cakes" úr pakka. Bíð eftir að þær kólni svo ég geti sett kremið á, þarf reyndar að hræra það fyrst. Hálf hráslagalegt úti núna, rigning af og til og þungskýjað. Nóvemberlegt veður, segja spekingarnir. Þarf að fara að huga að graskeri til að skera út í. Keyri nú framhjá graskerja söluskúr á hverjum degi, þarf bara að gefa mér tíma og stoppa einn daginn. Hlusta á Rás 2 á laugardegi, indælt.......ha, á að snjóa fyrir norðan á mánudaginn? Svo segja þau á Rás 2. Veturinn er sem sagt ekki langt undan, bæði hér og á Íslandi. Vona að skíðaíþróttir fari að byrja í TV, hlýtur að styttast í það.
Góða helgi allir.


sunnudagur, 10. október 2010

Breytingar enn og aftur.....

....nenni samt ekkert að blogga núna enda komið yfir miðnætti, það er sem sagt kominn 10.10.10. Örugglega margir sem gifta sig í dag. Ekki ég samt...... Kannski finn ég mynd til að senda með þessu breytta útliti, æi ég varð bara að setja eitthvað appelsínugult í tilefni af október, Halloween, graskerjum og svona. Hér er geggjað haustveður sem engan endi sér á, eitthvað á að kólna en það er allt í lagi meðan að blessuð sólin skín.
Sparkað í haustsólinni :) Þekkiði Henrik?

Segi bara góða nótt og sofið vel.

sunnudagur, 3. október 2010

Blíða og ekkert nema blíða

Var byrjuð að blogga í morgun þegar Seydi kom óvænt heim, hætt við fótboltann, mættu of fáir......ég ákvað því að geyma það aðeins að blogga, þarf frið til þess. Hef hann núna, í smá stund allavega. Seydi sefur, eða svaf, dyrabjallan hringdi og truflaði. Strákarnir leika inni í herbergi en þeir heimsóttu afa sinn og ömmu eftir bæjarferðina okkar. Í dag er víst þjóðhátíðardagur, reyndar sameiningardagur austur- og vestur Þýskalands. Það ber lítið á þessum degi hér, í bænum er bæjarhátíð, í Dorsten líka, búðir opnar og alles. Veðrið er alger æði, stuttermabola veður og sól. Má alveg vera svona áfram svo við fáum gullinn október, eins og sagt er hér.
Um daginn var svona þoka...
Í gær fyrir framan skólann
og í dag 22° hiti og sól :)
Æi,nú er friðurinn úti.......ég ætlaði að skrifa meira en Henrik vill spila ólsen, ólsen og ætli við verðum ekki að borða eitthvað.......
Heyri í ykkur seinna

PS. ég sé að myndavélin er með vitlausa dagsetningu......verð að breyta því NÚNA!