Það er aldeilis, pabbi bara mættur aftur hjá "Silfur Egils". Meira sem hann er frægur kallinn. Þó svo að ég hafi nú takmarkaðan áhuga á pólitík, hvað þá á Íslandi, fannst mér pabbi flottur. Strákunum fannst ægilega merkilegt að sjá afa í "sjónvarpinu". "Halló afi" sagði Henrik og svo "hann heyrir samt ekki í mér". "Afi er með skegg" sagði Julian, "ég vissi ekki að hann væri með skegg" :)
Er ég þá ekki smá fræg núna? Ég ímynda mér það allavega ;)
Sólin bara skín og skín og skín, dag eftir dag. Opinn sunnudagur í dag og FULLUR bærinn af fólki. Kíktum á bílasýningu. Þar sá ég nokkra álitlega bíla. Seydi langar mest í Volvo CS 90 en mér myndi nægja svona lítill Colt. Mig dreymdi alltaf um að eiga Colt. Viðurkenni samt að mig langar mest í Ford Kuga............
Knús á ykkur
hæ:) já pabbi tók sig bara vel út á skjánum, og alltaf sami kjafturinn á þeim gamla.
SvaraEyðaHann varð þó ekki frægari en það að hann gaf sér tíma fyrir dóttur sína eftir sjónvarpsheimsóknina:) kíktum í perluna og pabbi bauð upp á tertu og heitt kakó...ekki slæmt það.
Svo kom hann með afmælisgjöfina frá ykkur til mín og TAKK KÆRLEGA fyrir pakkann:* ég er voða ánægð með gjöfina:)
hafið það gott, KNÚS & KOSSAR
KV. R
ég var að reyna sjá hjá sjónvarpinu viðtalið - langar að sjá kallinn... en sjónvarpið vildi ekki sýna neitt nema það væri í beinni, einhverjar leiðir ábyggilega sem hægt er að fara en ég var ekki að rata inn á!
SvaraEyðaþekki ekki ford kuga... en nafnið kuga! er ekki alveg sátt við það, hljómar svona eins og þegar litlu börnin eru þú veist búin að dúddírú í buxurnar??
bið að heilsa
Elsku Rakel, en gaman að fara í Perluna og fá sér köku og kakó. Ég væri til í það. Flott að þér líkaði gjöfin, þú hefur fundið boxið sem var í töskunni?
SvaraEyðaVissir þú að Maja skírði Rakel? Rakel Bára heitir prinsessan.
Já Stella, bíllinn heitir Kuga, kannski er hann bara fyrir Evrópumarkað. Vissulega er þetta eins og sunnlensk börn myndu segja þegar þau þurfa að "kúka". U er nefnilega borið fram sem ú hér :D
Ég get alveg horft á allt á RUV, þ.e. ef það er á netinu. Á að vera hægt að horfa á þætti í 2 vikur?! Skil ekki af hverju þú ættir ekki að geta það........
Kveðja
frábært með pabba þinn!! Ég sá hann ekki verð að leita að þessu.
SvaraEyðaAlva