fimmtudagur, 18. september 2008

Húrra...

...og jibbí jei eins og mamma orðaði sms´ið til mín í gær. Pakkinn er kominn!!!! Ég er viss um að þeir hjá póstinum hafa fengið hugboð frá mér en ég fyllti út eitthvað eyðublað, til að láta leita að pakkanum, á föstudaginn. Efast um að það eyðublað hafi verið komið í hendur þeirra sem voru ekki að vinna vinnuna sína. En þetta er gott mál bara, pakkinn var heill á húfi. Samt hulin ráðgáta hvar hann hafi falið sig allan þennan tíma.

Eins og þið vitið hef ég verið að leika mér á "yearbookyourself" undanfarið. Ég er ekki að grínast með það að mér finnst ég kannast við ansi margar greiðslur þarna, eru eins og beint upp úr skólabókinni minni frá USA! Það er heldur ekkert grín að ég sé eins og Brian sem útskrifaðist með mér, Brian Harris. Því miður gleymdi ég, enn og aftur, að taka bókina með mér hingað. Kannski getur einhver á Garðarsbrautinni kíkt í bókina og borið myndirnar saman. Getur samt eiginlega ekki verið því að þessi "Brian" greiðsla á að vera frá 1992 og ég var nú þarna 1988. Jeminn eini, það eru 20 ár síðan...........Og ég er að missa af 20 ára bekkjarmótinu sem haldið verður um þarnæstu helgi :( Verst að vera ekki milljónamæringur með einkaþotu.

Sólin skín, hitinn er um 14°, gott mál bara. Er á leiðinni í bókasafnið á eftir (eins og oftast á fimmtudögum).

Knús

2 ummæli:

  1. Ha ha, þarna plataði ég ykkur.... þetta er bara ég.
    Vildi endilega óska öllum góðrar helgar. Verð grasekkja á morgun. Seydi fer til Frankfurt á sýningu. Við Bärbel ætlum að gera eitthvað með strákunum.

    Knús

    SvaraEyða
  2. Hæ hæ eg er líka grasekkja í dag pabbi þinn á fundi á Akureyri og kemur ekki heim fyrr en á morgun. Fer á morgun að hitta skólasystur mínar frá húsó á Laugum í Sumarbúðunum verð framm á sunnudag. Vonandi verður gaman hjá ykkur Barbel og strákunum á morgun. Góða helgi elskurnar. Kveðja og knús. Mamma

    SvaraEyða