Ég hef ákveðið að loka blogginu á mogganum. Get ekki einu sinni vistað 1 línu og EKKI bloggað við fréttir. Orðið þreytandi að halda þessu úti fyrir ekki neitt. Kannski reyni ég aftur seinna.
Annars er allt gott að frétta. Allir voða góðir hjá tannsa í gær og tennurnar í góðu lagi. Tannsi bætti aðeins við aðra framtönnina mína en ég braut úr henni með skeið fyrir 2 árum eða svo. Orðin heldur þunn greyið.
Veðrið er fínt, 21° hiti, rigning og sól til skiptis.
Nýja þvottavélin kemur á fimmtudag! Jibbí, hef verið að nota gamla AEG vél u.þ.b. frá árinu 1965 á meðan ég bíð. Ótrúlegt að þessi skrukka skuli þvo ennþá. Svona voru gæði í "gamla daga".
Er að hlusta á Rás 2 núna, líka í vinnunni í morgun. Geri það bara alls ekki oft, skemmtileg tilbreyting.
Fann hafrakodda hjá Aldi í dag. Strákarnir eru að verða búnir með pakkann.........eru þó ekki eins góðir og þeir sem fást á Íslandi.
Var stolt að sjá mynd af litla bróðir á mbl.is, hjálpa skipverja af Sigurpáli í land. Björgunarsveitin klikkar ekki. Gott að allt fór vel.
Farið vel með ykkur
ES. Fædd er lítil frænka strákanna, alveg á settum degi. Heitir Lia-Denise segir Seydi. Veit ekki hvort að hann hefur heyrt rétt. Kemur í ljós þegar ég heimsæki mágkonu mína.
ES. Komið í ljós, hún heitir Liya Denise. Ætlum í heimsókn á eftir.
fúlt þetta með moggabloggið, ertu kannski inn á firefox vafranum??
SvaraEyðaég er oftast þar inni vegna "öryggis" en hann svo leyfir mér ekki að gera neitt, ég get ekki sótt myndir, ekki hlustað á eitt né neitt.....en svo fer ég yfir á "whateveritiscalled" vafra og fæ þar að rúnta um allann heiminn án vandræða (samt ekki eins "örugg" þar - segir minn maður allavega)!!
vona að nýja þvottavélin reynist ykkur góð, þó það sé vissulega alveg á hreinu að nýja skranið er ekki gert eins og allt var áður! þú ert veist þó að breskar vélar kaupir maður bara EKKI...
Hef reynt bæði firefox og explorer. Alveg sama. Ég hef líka heyrt þetta með firefox, að hann sé öruggari. Kannski maður fái sér bara google chrome.......
SvaraEyðaKeypti mér Whirlpool, er það ekki frá ykkur?
Knús
já, flottur litli bróðir þinn :) já er ekki gott að hlusta á Rás2 stundum, Gest Einar og svona :) ÉG keypti mér þvottavél í hittiðfyrra, AEG, vona að hún endist eins vel og lánsvélin þín. Þar áður átti ég einhverja ítalska "druslu" eins og einhver sagði, hún þvoði tvær þvottavélar á dag í 14 ár og þoldi hvorki meira né minna en 6 flutninga og tvo skilnaði, skrambi góð, geri aðrar betur....hehe...
SvaraEyðaEn ég ætla að fá að sétja bloggið þitt hérna á bloggið mitt - link - ef þér er sama, þú skammar mig bara ef það er ekki í lagi...
luv Alva.
O jú, það er gott að hlusta á Rás 2 annað slagið. Man þegar ég gat hlustað á jólakveðjurnar í 1.skipti :)
SvaraEyða14 ár! Aldeilis engin drusla það..
Auðvitað máttu setja link á bloggið mitt. Annars væri ég nú ekki að þessu "bloggeríi" ;)
Knús